Leikskóli sveitarfélagsins, leikskólinn Brekkubær, fagnaði 20 ára afmæli í gær, á fullveldisdegi lýðveldisins. Var eðlilega glatt á hjalla þar sem mýmargir heimsóttu leikskólann myndarlega, samfögnuðu honum, starfsmönnum og nemendum - og var umbunað með glæsilegri afmælistertu. Tertan, sem raunar voru tvær, komu frá listakokknum Borghildi á Hótel Tanga og runnu ljúft niður með kaffinu/djúsnum.
Ari G. Hallgrímsson var einn þeirra sem leit inn og smellti af nokkrar myndir sem birtast hér á síðunni en ekki fylgdi sögunni hvort þær voru teknar fyrir eða eftir smakk ljósmyndara.
Á sunnudagin 04. desember verður aðventuhátíð í Vopnafjarðarkirkju og hefst kl. 17:00 en þeir sem reynt hafa stundir sem þessar vita að þær eru sérlega notalegar og má segja að tímanum sé vel varið þá stund sem aðventuhátíðin stendur.
Dagskrá aðventuhátíðar er fjölbreytt að vanda og býður æskulýðsfélagið upp á aðventukaffi í safnaðarheimilinu. Þar býðst fólki að eiga hátíðlega stund saman í kirkjunni í ljósi aðventunnar og eru allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.

Börn úr 10-12 ára starfinu og fermingarbörn verða með helgileik. Börn úr tónlistarskólanum flytja tónlistaratriði. Kór barna syngur jólalög og félagar í æskulýðsfélagi Hofsprestakalls Kýrosi syngja „Hjálpum þeim“