Fullyrða má að nokkuð á 3ja hundrað Vopnfirðingar hafi tekið þátt í menningarlífinu um liðna helgi en síðastliðið laugardagskvöld bauð Hótel Tangi til jólahlaðborðs í félagsheimilinu Miklagarði og í gær var aðventuhátíð í Vopnafjarðarkirkju. 150 matargestir fylltu vel í sal félagsheimilisins og sneisafull kirkjan staðfesti að fólk hefur ánægju af viðburði sem þessum þar sem þátt tekur fjöldi barna, ungmenna og fullorðinna. N. k. föstudag. 09. desember, verður Björgvinshátíð haldin í Kaupvangskaffi og fimmtudaginn 15. desember komið að stórviðburði þegar Frostrósir stíga á svið Miklagarðs. Ekki beinlínis deyfð í menningar- og félagslífinu á staðnum.
Heimildarmaður er í þeirri ánægjulegu aðstöðu að fá tækifæri til að tjá sig í aðra hverja viku í útvarpi allra landsmanna, á Rás eitt í morgunþætti Sigurlaugar og Jónatans. Einmitt í morgun fékk hann færi að koma Vopnafirði að með jákvæðum hætti og nýtir mínúturnar vel; raunar vill betri helmingurinn meina að slíkur sé hraðinn á malandanum að ½ meira komist að en ef meðalmaður tjáði sig! Hvað um það þá var vikið að jólahlaðborði og þar var m. a. sagt:
Um 150 manns mættu á jólahlaðborðið og nutu þess að bragða á mýmörgum matarréttum sem galdrameistarinn Borghildur á Hótel Tanga hafði töfrað fram. En það voru einnig töfrar á sviðinu, einungis heimamenn önnuðust skemmtidagskrána hvar heimabandið Batteríið lék undir og stóð sig með mikilli prýði. Karlakór Vopnafjarðar söng nokkur jólalög, 3 tenórar sömuleiðis og uppskáru verðskuldað lófaklapp fyrir. Hins vegar var hápunktur kvöldsins 4 ungar konur er sungu lagasyrpu tvískipta og gerðu svo vel að einhverjum varð á orði, Frostrósir hvað!
Einmitt, Vopnfirðingar eru stoltir af sínu og mega vera það því það sem þessar 4 dömur buðu upp á hefði sómt sér hvar sem er og þó ekki verði lagður dómur á hvort þeirra söngur var betri eða verri en Frostrósadíva sannaðist að oft þarf ekki að leita langt til að finna afburðagott fólk. Uppskáru hinar fjóru fræknu að sjálfsögðu uppklapp og sungu raddarð Mary´s Boy Child Boney M óaðfinnanlega og hefðu upprunalegu flytjendur haft gott að heyra í þeim. Þess má svo geta að fimmtudaginn 15. n. k. er komið að Frostrósum að skemmta Vopnfirðingum í sama húsi og hefur hér með verið sett ákveðin pressa á Frostrósadívur!
Í lok viðtals var einni léttri sögu komið að og á hún jafn vel við nú og þegar hún sögð fyrir margt löngu síðan og er á þessa leið: Vopnfirðingar í Ungm.fél. Einherja voru fyrir nokkrum áratugum í æfingaferð að vori í Færeyjum. Eftir einn leikinn sátu menn og spjölluðu og ræddi einn úr hópi Vopnfirðinga við kollega sinn frá Færeyjum og sagði við þann Færeyska: „Jæja, og hvenær byrjar svo Íslandsmótið hjá ykkur …?“ Mun hinum hvergi hafa brugðið og svaraði spurningunni samviskusamlega!