Á aukafundi hreppsnefndar Vopnafjarðar þann 29. nóvember sl. var sem 2. mál á dagskrá tilboð í hlutabréfaeign sveitarfélagsins í útgerðarfélaginu HB Granda, þar var bókað:
2. mál. Tilboð í hlutabréf Vopnafjarðarhrepps í HB Granda.
Lagt fram tilboð í hlutabréfaeign Vopnafjarðarhrepps í HB Granda alls 39.559.057 kr. að nafnverði. Tilboðið kemur frá Verðbréfafyrirtækinu Virðingu og er dagsett 29. nóv. 2011.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi gögnum, þar sem fram kemur hvaða verð er boðið fyrir hlutina og hver kostnaður yrði við söluna.
Hreppsnefnd samþykkti samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga frá sölunni til samræmis við umræður á fundinum.
Það gekk eftir því sveitarstjóri hélt suður síðar í vikunni til að ganga frá sölu hlutabréfanna og seldi hlut sveitarfélagsins og Skiphólma ehf., félags í eigu hans, nam um 2,5 prósentum af heildarhlut, fyrir tæpan ½ milljarð króna eða nánar tiltekið liðlega 478 milljónir króna miðað við 12.1 á hlut. Með sölunni hefur fjárhagur sveitarfélagsins styrks verulega.

Samanber að ofan var það verðbréfafyrirtækið Virðing sem nálgaðist hreppinn með sölu á bréfunum í huga og voru viðskiptin samhljóða samþykkt á fundinum. Ekki liggja enn fyrir upplýsingar um hver kaupandinn er en það mun vafalítið skýrast í vikunni þegar nýr listi yfir tuttugu stærstu hluthafa verður birtur í Kauphöll Íslands.
Sveitarfélagið seldi sem fyrr greinir hlut sinn á genginu 12.1 en samkvæmt ársreikningi Vopnafjarðarhrepps var hluturinn bókfærður á genginu 6. Salan mun styrkja fjárhag sveitarfélagsins verulega en heildar vaxtaberandi skuldir þess í lok síðasta árs, samkvæmt ársreikningi, voru um 940 milljónir króna. Nálega ½ lækkun skulda mun miklu breyta og gefa sveitarfélaginu ýmis tækifæri til framtíðar. Þó er ekki sjálfgefið að tiltekið lán sé greitt upp því lánveitandi getur haft meiri hag af ávöxtun lánsins en að það sé uppgreitt. Á hinn bóginn er sveitarstjóri eldri en tvævetra í starfi og mun finna hinar bestu leiðir fyrir sveitarfélagið.
Þrátt fyrir sölu eignarhlutar sveitarfélagsins í HB Granda er hagur sveitarfélagsins tryggður með starfsemi félagsins á Vopnafirði, sem hefur gengið vel undanfarin misseri, og engar ýkjur að halda því fram að gangi HB Granda vel farnast Vopnafirði vel. Í þessu samhengi má taka út fyrir sviga málefnið HB Grandi á Vopnafirði, sem aflar til útflutnings ca. 4-5 milljarða á ári, líklega ekki ofmat, er vegaframkvæmd í Vesturárdal upp á 1.2 milljarða ekki ofraun ríkisvaldinu að leggja til og koma staðnum loks árið 2011 í varanlegt vegasamband við þjóðveg eitt. Það er eingreiðsla en milljarðarnir 4-5 koma síðan í kistu fjármálaráðuneytis ár eftir ár …
Að lokum má geta þess að Arion banki á þriðjungshlut í HB Granda eftir að Ólafur Ólafsson missti hlut sinn til bankans. Sé mið tekið af þessum viðskiptum er virði hlutarins um 6,6 milljarðar króna og heildarvirði félagsins öfluga um 19,8 milljarðar króna.