Fréttatilkynning frá Vopnafjarðarhreppi

07.12 2011 - Miðvikudagur

Fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps var tekin til fyrri umræðu 17. nóvember sl. Í dag, 5. desmeber, var fjárhagsáætlunin samþykkt við síðari umræðu í sveitarstjórn.

 

Samkvæmt sjóðsstreymi áætlunarinnar er rekstrarafgangur samstæðu Vopnafjarðarhrepps 90,6 m.kr. og veltufé frá rekstri 149,5 m.kr. Í sjóðsstreymi kemur einnig fram að áætlað er að greiða skammtímaskuldir að fjárhæð 28,5 m.kr., fjárfesta fyrir 67,7 m.kr. og greiða afborganir langtíma lána að fjárhæð 71,3 m.kr. Engin ný lán verða tekin til þess að ljúka öllum þessum  greiðslum heldur er þetta allt greitt af sjálfsaflafé og gengið á handbært fé, sem verður í árslok, ef allt gengur upp 59,6 m.kr.

 

Í áætluninni er lögð höfuðáhersla á að sinna allri grunnþjónustu sveitarfélagsins eins vel og nokkur kostur er. Framkvæmdir eru lágmarkaðar, enda þótt nauðsynlegt sé að taka á tilteknum verkefnum. 

 

Frá hruni má segja að framkvæmdir hafi nánast verið stöðvaðar og allt kapp lagt í að lækka skuldir eins og frekast er kostur. Í þessari áætlun er þó gert ráð fyrir  67,7  m.kr. fjárfestingu nettó, en nauðsynlegt er m. a. að ráðast í lagfæringar á vatnsveitu, ljúka leikskóla, gera gangstéttir, malbika o. fl. Sérstaklega þarf þó að fara yfir forgangsröðun þessara verkefna.  

 

Með samvinnu við forstöðumenn deilda og stofnanna á yfirstandandi ári hefur verið reynt að hagræða sem kostur er í rekstri. Þessi vinna mun leiða til sparnaðar á komandi ári án þess að unnið sé eftir flötum niðurskurði útgjalda í heild.

 

Áætlun þessi tekur einnig mið af því að á yfirstandandi ári hefur tekist að lækka skuldir um nálægt 400 m.kr. þ. a. að skuldir breytast úr því að vera 183 % af heildartekjum sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningi 2010  í að vera rétt um 90 % miðað við fyrirliggjand fjárhagsáætlun ársins 2012, sem léttir verulega greiðslubyrði sveitarfélagsins til framtíðar.   Þetta tókst með því að selja eignir, sem sveitarfélagið átti og með aðhaldssömum rekstri. 

 

Sala þessara eigna er  mikið gæfuspor fyrir rekstur sveitarsjóðs. Sökum þessa er unnt að greiða niður ennfrekar langtíma lán á næstu árum en orðið er og vinna nauðsynlegar framkvæmdir án þess að taka ný lán.

 

Vopnafirði, 5. desember 2011,

 

Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir