Páll Þórðarson frá Refsstað vinnur til merkra verðlauna

07.12 2011 - Miðvikudagur

Það er með mikilli ánægju og stolti sem frá því er greint á heimasíðu Vopnafjarðar að Vopnfirðingurinn Páll Þórðarson, frá Refsstað, sonur Þórðar og Ágústu, hefur hlotið stórmerk verðlaun í Ástralíu, þar sem Páll býr og starfar. Um er að ræða hin svokölluðu Le Févre Minningarverðlaun, sem Ástralska vísindaakademían veitir fyrir árið 2012. Hlotnast Páli verðlaunin sem besti nýliðinn (early career reasarch award) í efnafræðirannsóknum í Ástralíu á þessu ári. Rétt er að hafa það hugfast að Ástralía er heil heimsálfa að stærð, 7.7 milljónir ferkílómetrar að flatarmáli, þar búa 21 milljón manna og er þjóðin vel menntuð. Afrek Páls er mikið og fær hann sendar innilegar hamingjuóskir á þessum vettvangi.

 

Verðlaunin verða veitt við athöfn konunglega Ástralska efnafræðistofnunarinnar á næsta ári og fylgja því 3000 dollara verðlaun eða um 300 þúsund íslenskar krónur. Fjármunirnir eru að sjálfsögðu smáatriði í þessu samhengi, viðurkenningin er á hinn bóginn staðfesting á afburðafærni hins unga Vopnfirðings. Enda er það mat Páls sjálfs að verðlaunin eru honum gríðarmikilvæg, einstök viðurkenning á störf hans og verða honum og samstarfsfólki ómetanleg hjálp um ókomin ár.

 

Um Pál er m. a. ritað á heimasíðu School of Chemistry, háskólans í Nýja-Suður Wales í Sindney:

 

Pall Thordarson (Palli) was born and raised on a farm in Vopnafjörður, Iceland. He undertook his B.Sc. (Chemistry) at the University of Iceland before heading to Australia in 1997 to do a Ph.D. in the group of Prof. Maxwell J. Crossley at the University of Sydney. After completing his thesis in 2001 he obtained a Marie Curie Fellowship to work with Prof. Roeland J. M. Nolte and Prof. Alan E. Rowan at the University of Nijmegen, The Netherlands. Dr. Thordarson returned to Australia in 2003 to take up an independent position as a Sesqui Research Fellow with a joint position at the Electron Microscope Unit and the School of Chemistry, The University of Sydney. He held an Australian Research Fellowship from the Australian Research Council (ARC) from 2006-2010.

Dr. Pall Thordarson moved to the School of Chemistry at UNSW to take up a position as a Senior Lecturer in November 2007. Dr. Pall Thordarson was awarded the New South Wales Young Tall Poppy Science Award in 2008 and The International Society of Porphyrins and Phthalocaynines (SPP) / Journal of Porphyrins and Phthalocyanines (JPP): SPP/JPP Young Investigator Award for 2010.

His publication record includes a paper in Nature and several papers in high-impact chemistry journals such as J. Am. Chem. Soc., Chem. Commun. and Angew. Chem. Int. Ed. More details about the work of Dr. Pall Thordarson are available in his CV.

 

Árið er búið að vera Páli, Palla eins og hann kýs að kalla sig í anda hógværðar sinnar, einkar hagsælt. Hefur hann ásamt kollegum sínum birt 10 vísindagreinar á árinu en í þessum geira er mikið horft til slíkra skrifa. Hefur Palli úrskrifað tvo doktorsnema í viðbót úr hópi sínum og hlaut ásamt samstarfsmanni rannsóknarstyrk frá Ástralska rannsóknarráðinu í síðastliðnum mánuði að upphæð er jafngildir 30 milljón íslenskra króna.

 

Maðurinn er félagsvera og nýtur Palli hamingjunnar með eiginkonu sinni Fleur og litla drenghnokka þeirra hjóna, Charlie Thomas, sem samstarfsfólk Fleur kallar gjarnan „litla víkinginn“. Býr fjölskyldan í 5000 manna smábæ er nefnist Mittagong og er í u. þ. b. klukkustundar akstri frá stórborginni Sidney, hvar búa um 4.5 milljónir manna og þar er starfsvettvang Palla að finna. Þó ofangreindar fréttir af vísindaafrekum Palla verði að teljast einstakar eru bestu fréttirnar þó þær að í maí á næsta ári eignast hnokkinn Charlie Thomas bróður eða systur!

 

Ítrekað eru innilegar kveðjur til Palla og fjölskyldu hans – og við hljótum öll að samgleðjast foreldrum hans ekki síður um leið og við hin hugsum með stolti til þess að litla samfélagið við Vopnafjörð skuli hafa fætt af sér slíkan afburðamann.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir