Hið árlega jólaföndur foreldrafélag grunnskólans var haldið í gær, miðvikudaginn 07. desember. Að vanda var mætingin með ágætum og lögðu allir sig fram um að búa til eitthvað fallegt fyrir jólin, nemendur jafnt sem foreldrar.
Fyrir marga er föndrið snar þáttur í aðdraganda jóla, að koma saman, dunda sér, sötra kakó, gæða sér á piparkökum og hlýða á jólalög. Eins og gengur er afraksturinn mismikill en allir hafa ánægju af og þá mun tilganginum vera náð.
Að venju var til sölu efni til föndurgerðar gegn vægu verði og var ekki annað að sjá en að listfengi nyti sín á velfle
stum borðum en tilgangurinn er auðvitað fyrst og fremst að njóta samvista við gott fólk og gefa ungviðinu tækifæri á að búa til eitthvað fallegt fyrir blessuð jólin. Tíminn mjakast áfram í huga þeirra yngstu en við sem eldri erum vitum betur því hratt flýgur stund, eftir einungis 23 daga er árið 2011 horfið á braut og kemur aldrei aftur. Það á ekki við um jólaföndrið, það mun örugglega vera á dagskrá í sal Vopnafjarðarskóla að ári.
Meðfylgjandi eru myndir frá föndurdeginum í sal grunnskólans en að vanda leit heimildarmaður við með myndavél í hönd, þannig fá fleiri notið þess sem fram fór.