Félagsmálafulltrúi á Vopnafirði - auglýst eftir stuðningsfjölskyldu

12.12 2011 - Mánudagur

Þorbjörg Garðarsdóttir, þroskaþjálfi og starfsmaður Félagsþjónustu Fljótsdalshérðas, verður á Vopnafirði þriðjudaginn 13. desember n. k. og verður að venju til viðtals á skrifstofu sveitarfélagsins auk venjubundinna heimsókna og funda.

Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs annast félagsþjónustu á Vopnafirði í samstarfi við Vopnafjarðarhrepp:

Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
Sími: 470 0705
Fax: 470 0701

Opið kl. 9-15 virka daga. Hægt er að panta viðtal við félagsráðgjafa sem kemur reglulega til Vopnafjarðar.

Meðfylgjandi er auglýsing frá Félagsþjónustunni, samanber:

Vopnfirðingar

Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs auglýsir eftir fjölskyldu á Vopnafjarðarsvæðinu sem er tilbúin að gerast stuðningsfjölskylda fyrir barn  2 sólarhringa á mánuði gegn ákveðnu gjaldi.  Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að hafa barnið hjá sér í umsaminn tíma á  mánuði og láta því líða vel.  Allar frekari upplýsingar veitir Þorbjörg í síma 470 0705 milli klukkan 9 og 15 virka daga eða á netfangið thorbjorgg@egilsstadir.is





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir