Velunnarar Björgvins Guðmundssonar, tónskálds, efndu til hátíðardagskrár í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 10. apríl á sl. vori þar sem úrval úr verkum þessa merka tónskálds voru flutt. Sl. föstudag var komið að Vopnfirðingum að efna til sinnar hátíðar - með liðstyrk að norðan.
Þar kom m. a. fram 100 manna kór undir stjórn Roars Kvam, sem flutti kantötuna, Tilkomi þitt ríki og Leikfélag Akureyrar sýndi valda þætti úr leikritinu Skrúðsbóndinn eftir Björgvin undir leikstjórn Maríu Sigurðardóttur. Einnig voru sungin þekkt einsöngslög eftir Björgvin og sýnd kvikmynd af söngferð Kantötukórs Akureyrar 1951 til Norðurlandanna. Þá voru flutt ávörp og stutt æviágrip um tónskáldið.
Allt þetta og meira til bauðst gestum Kaupvangs sl. föstudag er Vopnfirðingar, með fulltingi Akureyringa, héldu sína Björgvinshátíð. Það var höfðinglega boðið en norðanmenn buðu auk heldur upp á sögusýningu um ævi og störf Björgvins, allt frá því að hann sleit barnsskóna í Rjúpnafelli í Vopnafirði fram til dauðadags á Akureyri, hvar hann bjó og starfaði í 30 ár.
Ágústa okkar Þorkelsdóttir opnaði hátíðina með vel völdum orðum, Þorsteinn Gunnarsson var næstur á mælendaskrá og gerði grein fyrir velunnurum Björgvins og vinnu hópsins, sbr. hátíðin í vor og bókaútgáfa. Haraldur L. Sigurðsson vann sögusýningu Björgvins og á spjöldum var farið í gegnum ævi og list Björgvins, ákaflega fræðandi. Haukur Ágústsson talaði blaðalaust um tónskáldið og gerði snilldarlega en Haukur skrifaði bókina Ferill til frama og var til sölu á hátíðinni. Fyrir kaffihlé las Fanney Hauksdóttir uppúr bók Hauks, valdan kafla er varðar veruna í Vopnafirði og gerði eins og henni er lagið prýðisvel. Bauð frú Ágústa síðan upp á kaffi, kakó og með því, gafst fólki þá tóm til spjalls uns sýnd var glæsileg 50 mínútna mynd frá hátíðinni á Akureyri, sem var vel klippt og gaf góða mynd af hátíðinni í Hofi. Innfelld í Hofsmyndina var kvikmynd Vigfúsar Sigurgeirssonar af för Kantötukórsins til Skandinavíu 1951.
Hátíðardagskráin er haldin í tilefni af því að þann 26. apríl 2011 voru 120 ár liðin frá fæðingu Björgvins Guðmundssonar, eins merkasta tónskálds sem Ísland hefur átt. Björgvin var fæddur á Rjúpnafelli í Vopnafirði, bjó í Vesturheimi um árabil, og starfaði síðan á Akureyri um 30 ára skeið við tónsmíðar, söngkennslu, kórstjórn og orgelleik. Árið 1932 stofnaði hann Kantötukór Akureyrar sem hann æfði og stjórnaði fram til 1955. Kórinn hélt fjölmarga tónleika innanlands og utan. Af kunnustu tónsmíðum Björgvins eru óratoríurnar Strengleikar, Friður á jörðu og Örlagagátan og kantöturnar Íslands þúsund ár og Tilkomi þitt ríki. Hvert mannsbarn kann hans milda og fagra lag: Sofðu unga ástin mín og annað lag: Heyrið vella á heiðum hveri er mörgum tamt og afar kært.