Hringferð Frostrósa um landið heldur áfram með viðkomu á Vopnafirði í kvöld en af í tilefni 10 ára afmælis Frostrósa er farið með herlegheitin víðar en ella væri - og njóta Vopnfirðingar nú góðs af því. Óneitanlega eru jólatónleikar Frostrósa glæsilegir með hátíðlegri og veglegri umgjörð hvar sem komið er fram. Alls verða tónleikastaðir 13 talsins að þessu sinni, sem þýðir að æ fleiri geta sótt jólatónleika Frostrósa í heimabyggð eða næsta nágrenni.
Flytjendur í Hringferð Frostrósa um landið eru: Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes, Hera Björk, Margrét Eir og Vala Guðna – þau eru hér með boðin velkomin til Vopnafjarðar en þessum stórsöngvörum til fulltingis er Barnakór Vopnafjarðar, sem Stephen Yates hefur þjálfað, og félagar úr Stórhljómsveit Frostrósa undir stjórn Karls O. Olgeirssonar. Vettvangur viðburðar er félagsheimilið Mikligarður og hefjast tónleikarnir stundvíslega kl. 21:00.
Segja má að saga Frostrósa hafi verið ævintýri líkust og hratt flýgur stund því komið er að tíunda tónleikaárinu. Frostrósir hafa skapað sér fastan sess í jólaundirbúningi landsmanna og verið vinsælasti tónlistarviðburður á Íslandi undanfarin ár. Í söguyfirliti segir að þetta átti að snúast um jólin - að skapa fallega tónlist og ógleymanleg augnablik - að færa fólki jólayl með glæsilegum tónleikum og útgáfu. Þetta áttu að verða stórir jólatónleikar þar sem helstu söngvarar þjóðarinnar kæmu saman í fylgd kóra og stórhljómsveitar og myndu syngja jólin inn fyrir Íslendinga - og allt undir heitinu Frostrósir. Hefur það ekki gengið eftir?
Fyrstu Frostrósatónleikarnir voru haldnir árið 2002 í Hallgrímskirkju og viðtökurnar létu ekki á sér standa. Strax á þessu fyrsta ári seldist upp á tvenna tónleika þar sem Íslensku dívurnar komu fram ásamt hljómsveit og kórum. Árin 2003 og 2004 voru tónleikarnir haldnir í Grafarvogskirkju og á fjórða tónleikaári dugði ekkert minna en Laugardalshöllin fyrir Frostrósir sem tvífylltu hana. Slegið var Íslandsmet í aðsókn á Frostrósatónleikunum þetta árið.
Í ár er sum sé haldið upp á tíunda tónleikaárið með einstakri tónlistarveislu í desember og í samstarfi við Flugfélag Íslands munu Frostrósir svo fljúga um landið í desember – og hafa gert það. Jólatónleikar Frostrósa verða að vanda settir upp í glæsilegri umgjörð og munu Frostrósir færa landsmönnum jólin í Ólafsvík, Ísafirði, Tálknafirði, Selfossi, Eskifirði, Egilsstöðum, Akranesi, Vestmannaeyjum, Reykjanesbæ, Varmahlíð, Húsavík, Vopnafirði og Höfn í Hornafirði.
Í kvöld, fimmtudaginn 15. desember, munu þannig Vopnfirðingar bera augum herlegheitin og þess eyrnakonfekt sem þeim fylgja og er full ástæða til að láta sig hlakka til. Frostrósir munu án alls efa rísa undir væntingum tónleikagesta og koma fólki í jólaskapið hafi það ekki þegar náð þeirri notalegu tilfinningu.