Frá félagsþjónustu fatlaðra - fundað í Kaupvangi

15.12 2011 - Fimmtudagur

Fundur á Vopnafirði um þjónustu við fatlað fólk í Kaupvangi í dag kl. 14:00.

Um áramótin verður ár liðið frá því að sértæk félagsþjónusta við fatlað fólk fluttist frá ríki til sveitarfélaga. Af því tilefni er notendum þjónustunnar og aðstandendum þeirra boðið á fund fimmtudaginn 15. desember kl. 14.00 í Kaupvangi. Á fundinum gefst tækifæri til að ræða hvernig til hefur tekist og hvernig þróa skal þjónustuna áfram.

Vakin er athygli á að Sigurlaug Gísladóttir réttindagæslumaður verður á fundinum og mun kynna starf sitt.

Allir áhugasamir velkomnir.

Starfsmenn Félagsþjónustunnar

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir