Fyrir þau okkur sem alla jafna eigum ekki leið um Sundabúð vitum harla lítið um lífið innan veggja hennar en þar eins og annars staðar í samfélaginu er eitt og annað í gangi. Heimildarmaður fékk Emmu Tryggvadóttur í heimsókn í gær, sem færði hinum sama meðfylgjandi texta og myndir af lífinu í Sundabúð og er hin ánægjulegasta lesning.
Hjá vistfólki og starfsmönnum Sundabúðar gengur daglegt líf sinn vanagang þó að rekstrarfé sé af skornum skammti. Ómetanlegur er sá stuðningur sem heimamenn sýna stofnunni og varla hægt að hugsa sér hvernig hægt væri að reka þessa deild ef ekki kæmi til margvíslegur stuðningur við starfið. Á þessu ári hafa deildinni borist margar gjafir, Kvenfélagið Lindin gaf 8 Völker hjúkrunarstóla í borðsal og gjafasjóður Sundabúðar gaf einnig 8 samskonar stóla. En andvirði þessara gjafa er samtals 1,1 milljón.
Er gjafsjóðurinn tilkominn vegna peningagjafa sem einstaklingar hafa fært deildinni, síðast barst í sjóðinn 500.000 þúsund króna gjöf frá Jónínu Helgadóttur til minningar um feðgana Gísla Sigurð Helgason og Helga Gíslason frá Hrappstöðum.
Hirðfíflin, sem reka nytjamarkað í handverkhúsinu, hafa gefið á síðustu tveimur árum fjöldan allan af gjöfum til heimilisins m. a. veggfesta sturtustóla inn á öll baðherbergi, rúmdýnur og rúmfatnað, sjónvarp með veggfestingu, ferðageislaspilara, úðavél fyrir asthmalyf og fleira, andvirði þessara gjafa eru rúm 700.000 krónur. Öllum þessum aðilum eru færðar innilegar þakkir fyrir þeirra framlag.
Eins og áður sagði gengur lífið sinn vanagang og því sendum við myndir af árlegri laufabrauðsgerð sem fer fram með dyggri aðstoð íbúa Sundabúðar, að þessu sinni bættust í hópinn börn úr kirkjustarfinu og voru mörg þeirra að skera út sínar fyrstu kökur, það var því líf og fjör við laufabrauðsgerðina þetta árið. Fram undan eru svo litlu jólin í lok þessarar viku og eigum við von á börnum úr tónlistarskólanum við það tækifæri. Við sendum ykkur öllum jólakveðjur úr Sundabúð og horfum bjartsýn fram á nýtt ár.
Myndir tók Kristín Jónsdóttir