Undanfarna daga hafa Austfirðingar notið hins besta vetraveðurs, allnokkurt frost, stilla með heiðríkju, sem hámarkaði birtuna um dimmasta tíma ársins. Fyrir þá sem voru á ferðinni umliðna helgi nutu náttúrufegurðar Austurlands og þó klaki væri á vegum víða var frostið nógu mikið til að mynda stamt yfirborð. Sagan segir okkur að veðrið breytist ótt og títt á Íslandi, á stundum er sagt að á Íslandi sé einungis sýnishorn af veðri því svo umhleypingasamt að enginn veit hvernig viðrar að kveldi. Nú hafa veðrabrigði átt sér stað.
Þegar úr húsi var komið í morgun var ljóst að frost hafði orðið að frostleysu, snjór tekinn að bráðna með tilheyrandi hálku þar sem ekki hefur myndast krapi. Í þorpinu er víða klaka að finna og hann er háll og rétt að fólk fari með gát um götur, akandi jafnt sem gangandi. Víða er illfært um þjóðvegi fjórðungsins eða eins og yfirlögregluþjónninn á Egilsstöðum orðaði það í morgun á RUV er víða glæpsamlega hált og rétt að fara með mikilli varúð. Á síðu Vegagerðar má sjá að margir vegir eru illfærir sökum hálku, slíkir vegir eru öllum háskalegir en vel útbúinn bíll er miklu öruggari en illa - er þó rétt að ítreka hvatningu til fólks að fara með mikilli gát þurfi það á annað borð að fara á milli staða.
Samkvæmt Veðurstofu Íslands er þessi þíðutíð tilfallandi, þegar seinni partinn í dag mun frysta að nýju en það er eins og verið sé að leika sér að okkur mannfólkinu því aðstæður verða ansi háskalegar þegar veðrabrigðin eru með þessum hætti. Framundan er allt í senn bjartviðri, snjókoma og uppstytta, útlit er fyrir snjókomu á aðfangadag og vonar sá sem þetta ritar að jólin verði hvít þó umfram allt geymi maður jólin í hjarta sínu, óháð veðri, sem við fáum hvort eð er aldrei við ráðið. Hins vegar ráðum við örlögum okkar að nokkru - og þá með því m. a. að virða náttúruöflin.