Fundað um þjónustu við fatlað fólk

21.12 2011 - Miðvikudagur

Síðastliðinn fimmtudag bauð Félagsþjónustan Fljótsdalshéraðs til fundar í Kaupvangi en sem kunnugt er sinnir félagsþjónustan Vopnafirði einnig með samningi á milli aðila. Raunar mynda sveitarfélögin Fljótsdalshérað, Vopnafjarðar-, Borgarfjarðar-, Fljótsdals- og Djúpavogshreppur og Seyðisfjarðarkaupstaður saman eitt félagsþjónustuvæði. Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs veitir íbúum allra sveitarfélaganna þjónustu samkvæmt samningi þar um. Þessi sex sveitarfélög standa jafnframt að sameiginlegri fimm manna félagsmála- og barnaverndarnefnd samkvæmt samningi um nefndina og samþykktum fyrir hana.

 

Að fundinum að nýju. Fundarefnið var einkum þjónastan við fatlað fólk en um áramótin verður ár liðið frá því að sértæk félagsþjónusta við fatlað fólk fluttist frá ríki til sveitarfélaga. Af þessu tilefni var notendum þjónustunnar og aðstandendum þeirra boðið til fundarins en áður en málefnið, þjónusta við fatlaða, var sérstaklega rætt kynntu starfsmenn félagsþjónustunnar starfsemina en víst er það svo að fæstir gera sér grein fyrir hversu víðtæk sú þjónusta er sem stofnunin veitir. Kom fram að prýðisgott samstarf er á milli Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs og Félagsþjónustu Fjarðabyggðar.

 

Fór fram lífleg og athyglisverð umræða og fóru fundarmenn margsvísari af fundi enda svörin vel fram sett af hendi starfsmanna félagsþjónustunnar. Að umræðu lokinni fékk Sigurlaug Gísladóttir, réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Austurlandi, orðið en starfssvæði hennar er allt frá Vopnafirði í norðri til og með Hornafjörður í suðri. Í stuttu máli er réttargæslumanni ætlað:

 

·         Fylgjast með aðstæðum fólks með fötlun

·         Fólk með fötlun getur talað við réttargæslumann um réttindi sín

·         Réttindagæslumaður aðstoðar fólk við að gæta réttar síns

·         Réttindagæslumaður getur líka sjálfur ákveðið að skoða mál

·         Allir sem halda að brotið sé á rétti fólks með fötlun eiga að tilkynna það réttindagæslumanni

·         Réttindagæslumaður er með fræðslu fyrir fólk með fötlun og þeirra sem þess óska, t. d. aðstandendur og starfsfólk

 

Mann-réttindi

 

Allir eiga rétt á heimili – Allir eiga rétt á aðstoð

Allir eiga rétt á frelsi – Allir eiga rétt á virðingu

 

Ofangreint er sannarlega þess virði að fólk hafi í huga og muni að ekki er sjálfgefið að allir njóti virðingar, hafi heimili eða fái frelsis notið. Starf Sigurlaugar er mikilvægt en í hana má í síma 858-1964 eða í netfanginu Sigurlaug.gisladottir@rett.is





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir