Undanfarin ár, með undantekningu á síðastliðnu ári, hefur tónlistarfólk á Vopnafirði boðið til Þorláksmessugleði í Kaupvangi, verður svo nú og þá í Kaupvangskaffi. Er dagskráin þrítekin, klukkan 16, 18 og 20 hefst dagskráin og stendur yfir í u. þ. b. klukkustund. Auk tónlistar til að næra sálina verður Kaupvangskaffi opið og býður eitt og annað til að næra magann – er sjálfsagt að hvetja fólk til að mæta til messugleði í tengslum við heimsókn í Kaupvangskaffi og verslanir staðarins.
Í hugum mýmargra Íslendinga eru engin jól án skötuveislu í aðdraganda þeirra og þá á Þorláksmessu. Vopnfirðingar eru ekkert öðru vísi hvað þetta varðar en aðrir landar vorir og hefur Hótel Tangi lagt sig fram um að mæta þörfum skötuelskenda með veislu í hádegi á degi heilags Þorláks.
Um skötuna er skrifað:
Sá siður að borða kæsta skötu á Þorláksmessu er ættaður af vesturlandi en hefur á síðari árum breyðst út um allt land.
Algengasta skötutegundin til þessa brúks er Tindabikkja, en hún er botnfiskur sem lifir á 20-1000 metra dýpi, hún hefur styttri hala en aðrar skötutegundir og hefur auk þess gadda sem hún dregur nafn sitt af. Aðeins eru notuð börð skötunar.
Skatan er soðin í söltu vatni og borin fram með kartöflum og floti eða smjöri. En hreinsa þarf roð og brjósk af börðunum eftir suðu.
Vitað er um skötuveislur víða um bæinn, bæði í hádeginu og í kvöld, og fyrir þann sem skötuna líkar er dagurinn einkar ánægjulegur og víst er að hann er ólíkur öllum hinum þegar skatan er ekki á boðstólnum. Að lokum er ekki annað eftir en að segja verði ykkur að góðu, megi bragðið og lyktin duga ykkur fram að næsta Þorlák!