Í dag er 24. desember það herrans ár 2011, aðfangadagur jóla - einungis eru þá eftir 8 dagar eftir af árinu og fáeinar klukkustundir uns íslensk þjóð sest að hátíðarborði jólanna. Það er ávallt öðru vísi stemning ríkjandi á heimilinu þegar dregur að jólum – það er alls engin tilviljun þegar talað er um jólaskapið. Fólk fer í annan gír og svei mér þá ef hinir hörðustu meyrna ekki ögn á þessum tíma árs. Mikil er þó sú breyting sem orðið hefur á jólahaldi landans en ekki eru nema fáein ár - að manni finnst - þegar heyrðist af jólaskreytingum verslanna erlendis mörgum vikum fyrir jól.
Breytingin felst einkum í tvennu: Íslendingar hafa tekið upp háttu hinna erlendu stórþjóða, s. s. Breta, að skreyta verslanir og hús mörgum vikum fyrir jól; hins vegar eru dagarnir hver öðrum líkir og sú mikla stemning sem einkenndi æskujól þess er þetta ritar löngu liðin tíð. Við þessu er ekkert að gera, enginn getur staðist þróunina, samfélögin breytast hraðar en nokkru sinni og sú þjóð sem einu sinni var einangruð langt í norðurhafi er nátengd þjóðum í þúsundum kílómetra fjarlægð í gegnum samskiptatækni nútímans.
Þrátt fyrir ofangreint er mikilvægt að hver og einn varðveiti barnið í hjarta sínu, njóti stundarinnar með sínum nánustu, geri jólahátíðina eins persónulega og við verður komið. Jólin eru hátíð barnanna um leið og við hin eldri njótum samvistanna við þau og minnumst þess að sælla er að gefa en að þiggja.
Víða er fólk að finna sem hugsar út fyrir nánustu fjölskyldu sína þegar að hátíð ljóss og friðar kemur. Við skulum ekki gleyma að víða á fólk um sárt að binda og engan veginn sjálfgefið að blessuð jólin séu sá yndislegi tími sem þau eru í huga okkar velflestra. Við skulum hugsa vel til hvers annars, minnast hins sanna tilgangs hátíðar ljóss og friðar - og með þeim orðum fá Vopnfirðingar sem og landsmenn allir innilegar jólakveðjur frá Vopnafjarðarhreppi. Gleðileg jól.
