Ekki einungis bauðst Vopnfirðingum upp á skötu á hótelinu því frá og með kl. 16 bauð tónlistarfólk upp á Þorláksmessugleði í Kaupvangskaffi. Er afar ánægjulegt til þess að vita að hér skuli vera tónlistarfólk sem er reiðubúið að leggja á sig þá vinnu sem til þarf svo gerlegt sé að halda slíkan viðburð. Fólk kann sannarlega að meta frumkvæðið og var mæting með ágætum - hafði frú Ágústa auk heldur í nógu að snúast.
Öðru sinni var Bjarki mættur með myndavélina á vettvang og tók meðfylgjandi myndir.