Jólagjöf sveitarfélagsins, Vopnfirskt framtak

29.12 2011 - Fimmtudagur

Vopnafjarðarhreppur eins og margir aðrir vinnuveitendur hefur haft þá reglu að færa starfsmönnum sínum jólagjöf ár hvert – raunar aðalmönnum nefnda aukinheldur. Nú er það svo að engan veginn er sjálfgefið að starfsmenn fái jólagjöf frá vinnuveitanda sínum en eðlilega gleðjast allir yfir framtakinu – annað væri auðvitað vanþakklæti. Sveitarfélagið hefur farið ýmsar leiðir í gjafavali sínu þó kjötbiti hafi oft orðið fyrir valinu og víst er það svo að flestir gera sig ánægða með slíka gjöf. Sem fyrr segir skyldi hver og einn þakka það sem honum er fært.

 

Í ár valdi sveitarfélagið að færa sínu fólki að gjöf matvæli úr heimabyggð og sýna með frumkvæði sínu að það vill leggja sitt lóð á vogarskálina til að styrkja Vopnfirskt framtak. Eru þau sem að ákvörðuninni komu ákaflega stolt því í ákvörðuninni felst bein yfirlýsing um að leggja frumkvæði í heimabyggð lið og um leið að hvetja bæði frumkvöðlana til góðra verka og neytendur til að leita vörurnar uppi.

 

Gjöfin er einkar snotur, pappakassi (endurnýtanlegur) með útskornu loki og fallegu bandi utan um, samanber mynd. Innihaldið er síðan: Reyktur silungur, kofareykt nautatunga, karamelluíssósa, Búálfabrauð, eplachutney og rom-villibráðasulta. Vörurnar eru síðan umvafðar pappírsstrimlum úr tætara sveitarfélagsins.

 

Allt er þetta sýnishorn af því góða framtaki sem á sér stað innan Vopnfirska matargatsins og verður vonandi áframhaldandi vöxtur meðal heimamanna. Sama hver gjöfin verður á næsta ári sýndi Vopnafjarðarhreppur lofsamlegt frumkvæði með ákvörðun sinni um að leita til heimamanna um góðmetið, við hin sem gjöf fengum getum svo staðfest að okkar fólk er að vinna gott verk og ber að þakka fyrir sig.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir