Helgihald um áramót - áramótafögnuður

30.12 2011 - Föstudagur

Messað verður á gamlárs- og nýársdag; gamla árið kvatt með aftansöng í Vopnfjarðarkirkju kl. 17:00 á gamlársdag og nýju heilsað með hátíðarguðsþjónustu í Hofskirkju á nýársdag kl. 15:00, samanber tilkynningu kirkjunnar hér að lútandi:

Gamlárskvöld
Aftansöngur í Vopnafjarðarkirkju kl. 17:00.

Nýjársdagur
Hátíðarguðsþjónusta í Hofskirkju kl. 15:00. Ágústa Þorkelsdóttir, prédikar.

Verum öll hjartanlega velkomin.

Áramótum fylgir fögnuður enda merkileg tímamót að upplifa hverju sinni, þegar eitt ár tekur við af öðru. Vopnafjarðarhreppur hefur ávallt boðið upp á áramótabrennu og tíðum hefur eitthvað verið um að vera í félagsheimilinu, svo verður nú.

Í flygildi er fór í hvert hús sveitarfélagsins í gær segir:

Gamlárskvöld á Vopnafirði

Áramótabrenna við Búðaröxl kl. 20:30

Skotið verður upp flugeldum í námunda við brennuna.

 

Heilsum árinu 2012 með gleði í hjarta ~

Við hvetjum alla Vopnfirðinga til þess að mæta vel og fagna sameiginlega áramótunum.

 

 

Félagsheimilið Miklagarður, kl. 00:30-04:00

Líf og fjör á nýársnótt …

Baldvin og Danni skemmta á barnum

Aldurstakmark 18 ára.

Aðgangur ókeypis

 

Skemmtun okkur á nýársnóttu í góðra vina hópi :-)

Með bestu áramótakveðjum,

 

Vopnafjarðarhreppur

Sum sé eitt og annað framundan um áramótin, sem eru vel að merkja á morgun ... árið 2011 heyrir brátt sögunni til.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir