Áramótakveðja

31.12 2011 - Laugardagur

Þegar þetta er ritað eru einungis fáeinar klukkustundir eftir af árinu 2011, af því er liðið 364 dagar og 12 klst., svona hér um bil. Eins og ávallt þegar litið er um öxl hefur árið verið viðburðaríkt og fyrir Vopnfirðinga hagsælt því hafið var gjöfult. Menningin blómstraði og ljóst að litla samfélagið við Vopnafjörðinn hyggst mæta nýju ári öflugra en áður því með sölu hlutabréfa í HB Granda er staða sveitarsjóðs góð og möguleikar ýmsir á nýju ári.

 

Í víðara samhengi er óróa innan þings framhaldið, á lokadegi árs eru hrókeringar innan ríkisstjórnar og  Icesave-deilan að einhverju leyti enn óleyst. Átök á atvinnumarkaði og sérstakur enn að kafa ofan í hin ýmsu mál en fæst mál upplýst. Á hinn bóginn eru merki þess að Ísland sé á batavegi og ef heimskreppa er ekki í vændum munum við finna leið ú túr erfiðleikunum og Ísland veðrur áfram besta land í heimi þó það verði seint það stórasta eða þannig.

 

Árið 1886 samdi séra Valdimar Briem Nú árið er liðið í aldanna skaut og mun fara vel á að enda síðasta fréttapistil ársins á ljóði skáldsins um leið og Vopnafjarðarhreppur sendir íbúum sveitarfélagsins og landsmönnum öllum hugheilar áramótakveðjur með þökk fyrir árið sem er að líða.

 

    Nú árið er liðið í aldanna skaut

    og aldrei það kemur til baka,

    nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,

    það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,

    en minning þess víst skal þó vaka.

    

 

    En hvers er að minnast og hvað er það þá,

    sem helst skal í minningu geyma?

    Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,

    það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.

    En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.

    

 

    Hún birtist á vori sem vermandi sól,

    sem vöxtur í sumarsins blíðum,

    í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,

    sem skínandi himinn og gleðirík jól

    í vetrarins helkuldahríðum.

    

 

    Hún birtist og reynist sem blessunarlind

    á blíðunnar sólfagra degi,

    hún birtist sem lækning við böli og synd,

    hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd,

    er lýsir oss lífsins á vegi.

    

 

    Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár

    og góðar og frjósamar tíðir,

    og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,

    og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.

    Allt breyttist í blessun um síðir.

    

 

    Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár

    og góðar og blessaðar tíðir,

    gef himneska dögg gegnum harmanna tár,

    gef himneskan frið fyrir lausnarans sár

    og eilífan unað um síðir.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir