Í bréfi til Vopnafjarðarhrepps, dags. 21. desember 2011, sækir Vegagerðin um framkvæmdaleyfi um fyrirhugaða breytingu á legu Norðausturvegar í nágrenni þéttbýlisins í Vopnafirði og lagningu nýrrar vegtengingar frá Norðausturvegi til Vopnafjarðar. Í tengslum við vegagerðina þarf að auki að byggja 2 nýjar tengingar, samtals 2.6 km. að lengd. Hefur sveitarfélagið á fjölmennum borgarafundum kynnt málið vel fyrir íbúum sveitarfélagsins.
Myndin að ofan sýnir núverandi gatnamót við enda Norðausturvegar skammt frá þéttbýlinu, þau munu hverfa með nýframkvæmdinni. Hin myndin sýnir Margréti bókavörð hlaupandi í Norræna skólahlaupínu í haust - í Hafnarbyggðinni.
Líkt og allir hafa reynt hefur hinn nýi þjóðvegur um Vesturárdal gjörbylt samgöngu á landi fyrir íbúa sveitarfélagsins og ber að þakka framsýni ráðamanna sveitarfélagsins að hafa fylgt málinu eftir af einurð og elju en ekki var sjálfgefið að af framkvæmdum yrði eins og staða efnahagsmála er og verið hefur sl. ár á Íslandi. Hafandi fengið þessa samgöngubót tryggða er útlit fyrir að árið 2013 verði verkinu að fullu lokið, þ. e. hinn nýi vegur sem Vegagerðin æskir heimildar til að ráðast í þegar á þessu ári, verður tilbúinn.
Um er að ræða tvo nýja vegi. Annars vegar veglínu A, sem er 1.1 km. löng, og hins vegar veglínu B, sem er 1.14 km. löng. Einnig þarf að leggja tvær nýjar vegtengingar, veglínu C, sem er 0.22 km. löng, og veglínu D, sem er 0.08 km. löng.
Veglína A liggur í framhaldi af götunni Hafnarbyggð, sem verður þar með hluti af þjóðvegakerfi landsins – hluti Hlíðarvegar nr. 917 – en af sama tíma falla Hamrahlíð og Búðaröxl af þjóðvegaskrá. Mun gatan þannig ná að vegamótum hins nýja Norðausturvegar í Vesturárdal. Veglína B er framhald Norðausturvegar um Vesturárdal meðan veglína C tengist við veg sem liggur að þéttbýlinu og D að vegi að Leiðarhöfn. 
Þegar liggur fyrir könnun á matsskyldu framkvæmdarinnar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum vegna rasks á votlendi og nálægðar við fornleifar. Hefur Skipulagsstofnun komist að niðurstöðu að framkvæmdin sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og því ekki háð umhverfisáhrifum. Á hinn bóginn eru framkvæmdirnar háðar framkvæmdaleyfi Vopnafjarðarhrepps og áður en framkvæmdaleyfi er veitt þurfi að liggja fyrir staðfest breyting á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026.
Fer málið nú sína leið innan sveitarfélagsins og þarf skipulags- og bygginganefnd að taka það fyrir áður en sveitarstjórn fær það til endanlegrar afgreiðslu. Mun niðurstaða liggja fyrir innan skamms tíma og í framhaldi mun Vegagerðin vinna útboðsgögn hér að lútandi.