Morgunblaðið greinir frá því í morgun að falleg loðna hafi veiðst um 70 sjómílur norðaustur af Langanesi í gær.
„Við erum allavega búnir að finna lyktina af henni,“ sagði Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey NS, í gærkvöldi. „Þetta er fínasta loðna“. Þeir á Lundey voru þá komnir með um 450 tonn og stóð jafnvel til að taka annað hal áður en farið yrði til Vopnafjarðar. Arnþór sagði að ágætisveður væri á miðunum og gott að eiga við loðnuna meðan veðrið héldist gott.
Í gærkvöldi var um tugur skipa á þessum slóðum og fleiri á leiðinni. Á miðunum voru á meðal annarra vinnsluskipin Vilhelm Þorsteinsson EA og Kristina EA sem vinna aflann um borð.
HB Grandi hf. Greindi frá því á heimasíðu sinni í gær, 04. janúar, að heildaraflaverðmæti skipa félagsins á síðasta ári hafi numið alls um 18 milljörðum króna. Heildaraflinn var rúmlega 160.000 tonn, þar af 106.000 tonn af uppsjávarfiski og 54.000 tonn af botnfiski.

Verðmæti afla fimm frystiskipa HB Granda var samtals 10,743 milljarðar borið saman við 8,685 milljarða árið 2010. Nemur aukningin 24%.
Velta þriggja ísfisktogara var 3,102 milljarðar króna borið saman við 2,647 milljarða 2010. Nemur aukningin 17%.
Mikil aukning var hjá uppsjávarskipum félagsins en hin fjögur uppsjávarskip HB Granda veltu samtals 4,1 milljarði króna en til samanburðar 3,432 milljörðum 2010. Nemur aukningin 19%.
Samanlagt aflaverðmæti var því 17,945 milljarðar á árinu 2011 borið saman við 14,764 milljarða verðmæti afla árið 2010. Nemur aukningin 22%. Eru þetta góðar fréttir fyrir alla hlutaðeigandi.