Að venju bauð sveitarfélagið til 13da brennu en víða um land er jólaloka minnst með útiskemtunum sem innihalda brennu, dans og söng. Þar koma fram álfar, tröll, jólasveinar og aðrir slíkir. Fólk kemur þá gjarnan saman við brennuna með kyndla, skýtur upp síðustu flugeldunum frá áramótunum og syngur saman áramóta- og álfasöngva.
Vopnfirðingar láta sér nægja bálköst og flugeldasýningu, sem Kiwanis heldur utan um. Veður var nógu gott til að standa fyrir viðburðinum en á sl. ári skall á norðanáhlaup og brennan fékk að standa það árið eða uns starfsmenn sveitarfélagsins komu efni hennar í geymslu til nýliðinna áramóta.
Meðfylgjandi eru myndir af þrettándabrennunni, margar en það má alltaf hafa gaman af að kíkja á ljósmyndir eða hvað?