Þriggja ára áætlun Vopnafjarðarhrepps 2013-2015 samþykkt

10.01 2012 - Þriðjudagur

Á fundi hreppsnefndar þann 05. janúar sl. var tekin til síðari umræðu þriggja ára áætlun sveitarfélagsins, A- og B-hluta ásamt greinargerð sveitarstjóra með áætluninni. Áætlunin var tekin til fyrri umræðu á fundi hreppsnefndar 15. desember sl. og var þá vísað til síðari umræðu í hreppsnefnd.

 

 

Sveitarstjórn hvers sveitarfélags skal árlega semja og fjalla um áætlun til þriggja ára samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998:

 

Sveitarstjórn hvers sveitarfélags skal árlega semja og fjalla um áætlun til þriggja ára samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 með síðari breytingum. Hún skal ná yfir rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Áætlunin skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir þess. Hún skal vera unnin og afgreidd af sveitarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar. Form þriggja ára áætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings og stjórnvaldsfyrirmæli sem sett eru um þriggja ára áætlanir.

 

Tilgangur þriggja ára áætlana er að sveitarstjórn horfir til framtíðar við vinnslu hennar og setur ramma um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins með ákveðin markmið í huga. Við slíka vinnu hljóta að koma upp ýmis sjónarmið varðandi ákvarðanatöku, umfang framkvæmda, áherslur og fjárhagslega getu sveitarfélagsins út frá ýmsum sjónarmiðum.

 

Þriggja ára áætlun er í eðli sínu leiðbeinandi fyrir stjórn sveitarfélagsins en til samanburðar er hin árlega fjárhagsáætlun skuldbindandi hvað varðar ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagsins á reikningsárinu.

 

Í anda þessa hefur sveitarstjórn unnið og strax í upphafi árs afgreitt áætlunina með öllum greiddum atkvæðum, þannig að samstaða er innan sveitarstjórnar varðandi þetta mikilvæga mál. Að vanda fór sveitarstjóri fyrir vinnunni og gerði síðan grein fyrir fyrirliggjandi gögnum og í máli hans kom m. a. fram að:

 

„Áætlun þessi tekur mið af því að stigin hafa verið stór skref á árinu 2011 í niðurgreiðslu lána sveitarfélagsins. Í fjárhagsáætlun ársins 2012 er einnig gert ráð fyrir því að halda áfram á þeirri braut. Af þessum sökum verður rekstrarniðurstaða samstæðunnar betri en ella væri þar sem fjármagnskostnaður lækkar verulega. Þriggja ára áætlun sýnir að áfram skal halda á þessari braut. Hreint veltufé frá rekstri verður á bilinu 152,6 m.kr. til 166,9 m.kr., sem er 24,4 %-26,2 % af heildartekjum, sem verður að teljast ásættanlegt.

 

Öll árin 2013-2015 er gert ráð fyrir að hreint veltufé frá rekstri dugi vel fyrir öllum fjárfestingum og niðurgreiðslu þeirra lána sem greiða þarf niður. Miðað við lánamassa sveitarfélagsins eins og hann er í dag eru afborganir ársins 2013 72,3 m.kr. ársins 2014 56,5 m.kr. og ársins 2015 48,6 m.kr.  Hér er gert ráð fyrir að greiða lán hraðar niður en nauðsynlegt er.

 

Á hverju ári tímabilsins verða aukalega greidd niður lán að fjárhæð 40 m.kr., hvert ár.   Þrátt fyrir þetta er gert ráð fyrir að fjárfestingar á tímabilinu verði um það bil 10 % heildartekna á áætlunartímabilinu.  Svigrúm sveitarfélagsins til ýmisra aðgerða er þó töluvert mikið meira þar sem handbært fé er verulega jákvætt allt tímabilið og er 52,0 m.kr. í árslok 2015. Af þessu sést að svigrúm sveitarfélagsins til frekari fjárfestinga eða fjárfrekra aðgerða er talsvert umfram það sem ráðgert er.“

 

Að lokinni yfirferð sveitarstjóra lagði hann til að fyrirliggjandi þriggja ára áætlun sveitarfélagsins yrði samþykkt eins og hún lá fyrir á fundinum við síðari umræðu.

 

Nokkrar umræður urðu um fyrirliggjandi áætlun og gögn og svaraði sveitarstjóri framkomnum fyrirspurnum.

 

Fyrirliggjandi áætlun ásamt greinargerð var síðan samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir