Loðnuveiðar fara vel af stað á nýju ári

11.01 2012 - Miðvikudagur

Af loðnuveiði voru fréttir litlar í lok síðastliðins árs, illa gekk að leita smáfiskinn uppi en fréttum samkvæmt hefur loðnuveiðin farið vel af stað á nýju ári og kom Lundey NS með fyrsta afla ársins, alls rúmlega 900 tonn, til Vopnafjarðar sl. fimmtudag. Í kjölfarið fylgdu Faxi RE og Ingunn AK með samtals um 2.500 tonna afla og sl. mánudag var Lundeyin komin með um 1.100 tonna afla úr annarri veiðiferð ársins.

 

Á heimasíðu HB Granda, www.hbgrandi.is, er vitnað í Vilhjálm Vilhjálmsson, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, er segir veiðisvæðið nú um 100 sjómílur ANA af Vopnafirði. Segir Vilhjálmur ennfremur að vinnsla hafi gengið vel. Hægt er að frysta loðnu, sem er þyngri en 25 grömm eða færri en 40 stk/kg. Um 25-30% aflamagnsins úr loðnuförmunum fram að þessu hafa verið yfir fyrrgreindum stærðarmörkum og nú er búið að frysta um 1.000 tonn af loðnu á Vopnafirði.

 

Faxi kom svo að landi mánudagsins síðla dags með 800 tonn af loðnu meðan Ingunn var að veiðum í leiðindaveðri, sem verið hefur á miðunum og eru veðurhorfur ekki góðar fyrir næstu tvo sólarhringana – þ. e. til dagsins í dag.

 

Hafrannsóknarstofnun hefur á undanförnum árum mælt ungloðnu í október - nóvember en vegna verkfalls á rannsóknaskipunum hófst leiðangurinn nú seinna en áætlað var eða 29. nóvember. Rannsóknarskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson luku leiðangrum sínum 10. desember. Árni Friðriksson kannaði svæðið frá Kolbeinseyjarhrygg vestur í Grænlandssund en Bjarni Sæmundsson, sem var jafnframt í sjórannsóknum, kannaði svæðið austan Kolbeinseyjarhryggs.

 

Engin loðna fannst austan Kolbeinseyjarhryggs en loðna fannst með kantinum vestan Kolbeinseyjar frá um 20°30’ v.l. allt að sunnanverðu Grænlandssundi. Á austanverðu svæðinu var loðnan mikið blönduð, ókynþroska ungloðna og fullorðin loðna, á miðbiki útbreiðslunnar var meiri hlutinn fullorðin loðna og vestast á svæðinu var mest ókynþroska ungloðna. Ekki var unnt að kanna grænlenska landgrunnið og svæði við Austur–Grænland vegna rekíss og ísmyndunar.

 

Í fyrra haust voru ungloðnumælingarnar gerðar á tímabilinu 24. september til 11. október eða um tveimur mánuðum fyrr. Þá var hluti ungloðnunnar á því svæði sem unnt var að kanna nú en lang mest af loðnunni, bæði ungloðnu og eldri loðnu, var á grænlenska landgrunninu og norður með Austur-Grænlandi allt norður fyrir Scoresbysund (71° n.br.), eða á svæði sem ekki var unnt að kanna núna vegna íss. Ekki verður fullyrt um hvort dreifing loðnunnar er með sama hætti og í fyrra en ef það er raunin var stærstur hluti loðnustofnsins utan rannsóknasvæðisins í ár. Reiknað er með að gerð verði tilraun til frekari ungloðnumælinga á nýju ári ef aðstæður leyfa.

 

Magn kynþroska loðnu var miklu minna en búast hefði mátt við eftir ungloðnumælingar haustið 2010. Hafrannsóknastofnunin mun strax í byrjun nýs árs fara til mælinga á veiðistofni loðnu og að loknum þeim mælingum mun stofnunin leggja til aflamark fyrir yfirstandandi vertíð.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir