Norðausturvegur, ný vegtenging við Vopnafjörð

12.01 2012 - Fimmtudagur

Á fundi sveitarstjórnar hinn 05. janúar sl. var lagt fram bréf Vegagerðar varðandi framkvæmdaleyfi nýrrar tengingar Norðausturvegar í þéttbýli Vopnafjarðar. Var erindinu vísað til skipulags- og bygginganefndar, sem fundaði þann 10. janúar sl. og samþykkti samhljóða framkvæmdaleyfið. Um málið hefur verið fjallað á heimasíðu sveitarfélagsins en meðfylgjandi eru tvö skönnuð kort af vettvangi og er að finna hér að neðan.

 

Hver sá sem reynt hefur hinn nýja veg um Vesturárdal veit að himinn og haf skilur á milli þeirra aðstæðna sem íbúar Vopnafjarðar bjuggu við meðan enn var farið yfir hæstu hæðir Vopnafjarðarheiðar, mjóan malarveg með stórgrýti til beggja handa. Með komandi framkvæmd verður verkinu að fullu lokið nema hvað hringtorg skammt ofan byggðar, þar sem vegur úr Vesturárdal mætir þeim er liggur til norðurs, mun koma síðar. Þangað til þjóna T-gatnamót vegfarendum og engum vandkvæðum bundið að búa við þau.

 

Eftir sem áður verður hægt að fara um núverandi Norðausturveg, um Búðaröxl, sem t. a. m. hentar íbúum Holtabyggðar þéttbýlisins með ágætum þegar veginn um er ekið. Þegar framkvæmdum lýkur, sem áætlunum samkvæmt verður haustið 2013, er Vopnafjörður kominn í vegasamband sem hæfir nútímanum og ekki mun líða á löngu uns íbúum finnst sem óralangur tími sé síðan hingað þurfti um hættulegan fjallveg að fara, svo holóttan og egghvassan að bestu bílar þoldu illa skakið. Svo ekki sé minnst á þungatakmarkanir að vetri og vori með tilheyrandi erfiðleikum fyrir t. a. m. HB Granda.

 

Þeir sem kynna vilja sér málið nánar, kynningarskýrslu ásamt öðrum upplýsingum, er bent á heimasíðu Vegagerðar, www.vegagerdin.is undir kaflanum; framkvæmdir, umhverfismat og kynningargögn, kynning framkvæmda á Norðaustursvæði.

Vopnafjarðarkort, skönnuð.pdf





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir