Umhleypingar – íslenskur vetur?

13.01 2012 - Föstudagur

Seint mun íslensk þjóð þreytast á að spá í og ræða veðrið. Hvernig á annað að vera eins og veðrabrigðin eru algeng á litla eylandinu. Í huga heimildarmanns er veturinn sumrinu verri hvað þetta áhrærir, alltént er horft er til síðastliðinna ára því meðan vetur hafa verið umhleypingasamir hafa sumrin verið tiltölulega stöðug, þ. e. sólarlítil og svöl. Ef horft er til sl. vikna, 6-8 að telja, hefur tíðin verið landanum erfið, einn daginn snjókoma í frosti, þann næsta þíða með tilheyrandi klakamyndun því aldrei hefur milda tíðin náð að vinna á þykkum klakanum. Afleiðing þessa er hálka, í tilfellum fljúgandi hálka, bæði í þétt- og dreifbýli. Er rétt að hvetja alla, fótgangandi sem akandi, að fara með gát.

 

Það sem vekur kannski mesta athygli er sú ótíð sem ríkt hefur á suð-vestur-horni landsins en um margra ára skeið hefur svæðið sáralítinn snjó fengið og sannast best á að forráðamenn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins hafa vart haft fyrir því að opna þau. Nú bregður svo við að Bláfjöll og Skálafell eru á kafi í snjó, fólk fjölmennir sem aldrei fyrr í Bláfjöll meðan á heimasíðu Skálafells stendur: Skálafell verður ekkert opnað veturinn 2011-2012. Skálafelli hefur þó ekki verið lokað varanlega. Bera menn við auraleysi en einhverjir hljóta að vera reiðubúnir að opna veskið því fjölmargir íbúar höfuðborgarinnar hafa um árabil fjölmennt út á land til að renna sér á skíðum, þá einkum norður.

 

Nú er sannarlega blikur á lofti og spáð allt að 10°C hita víða um land, með helliregni í einhverjum tilfella og má vænta að í stað vandræðagangs við snjóhreinsun taki við vinna við hreinsun niðurfalla og svells á vegum og gangstéttum. Mikils er krafist af starfsmönnum áhaldahúsa í bæjarfélögum um allt land og í tilfellum virðist engu skipta hversu vel menn vinna, þeir fá alltaf á sig gagnrýni fyrir að gera ekki nóg – að bregðast ekki nógu fljótt við. Sama á við um snjóhreinsun þjóðvega og er hlutskiptið ekki öfundsvert þar eð notendur eru landsins þegnar og þeir eru margir. Tjáði heimildarmanni verkstjóri Vegagerðar á Vopnafirði að 60% af áætluðu salt- og sandnotkun vetrarins þegar á vegi farið, hafandi bróðurpart vetrar framundan.

 

Samkvæmt Veðurstofu Íslands er sum sé von á miklu vatnsveðri að umhleypingasamt verður á næstu dögum. Þannig er von á rigningu og hlýnandi veðri fram eftir degi sunnan- og vestanlands í dag og menn óttast mjög að leysingavatn muni flæða inn í hús og að hálir svellbunkar muni valda fólki erfiðleikum á götum og gangstéttum. Reiknað er þó með að draga muni úr rigningunni sunnanlands eftir því sem líður á morguninn. Eins og svo oft í vetur er útlit fyrir að Suður- og Vesturland séu að líða meira fyrir veðraumskiptin en aðrir landshlutar.

 

Í ljósi hamskipta veðurguðs hefur Vegagerðin sent frá sér viðvörun og segir mikinn vatnselg vera á götum á höfuðborgarsvæðisins og nágrenni og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát á þessum leiðum. Síðan taka við tilkynningar um færð á vegum um land allt, varað er við hálku á Austurlandi en svo sem áður greinir eru viðvörunarmerkin færri og smærri fyrir landshlutann okkar en syðra/vestra og þykir sumum, sem búið hafa við annað hlutskipti um árabil, það bara allt í lagi að aðrir landshlutar finni fyrir nálægð vetrar.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir