Svo hvarf snjórinn

16.01 2012 - Mánudagur

Rétt eins og í hinu daglega lífi gengur á ýmsu í veðrinu, það reynum við Íslendingar ár hvert. Á miðjum vetri koma svo hlýir dagar að undrun sætir með þeim afleiðingum að snjó tekur upp og í tilfellum hverfa svellbunkar einnig - og þeir mega svo sannarlega hverfa! Í lok síðustu viku tók að hlýna svo um munar og er heimildarmaður rölti með myndavél í hönd sl. laugardag var sem ilmur að vori fyllti vitin en að sjálfsögðu er blessað vorið einungis fjarlægt markmið því bróðurpartur vetrar er framundan.

Ísland, langt í norðri, hefur þá sérstöðu að á vetri koma hlýindakaflar þar sem hitastig nær 10°C og vel það, ólíkt t. a. m. norðurhéruðum Skandinavíu þar sem vetur kemur og fer ekki fyrr en kemur að vori. Yfirleitt fá þau einnig hlý og góð sumur þó það sé ekki algilt fremur en annað í þessum heimi. Við, á hinn bóginn, eigum því að venjast að sumur geta verið fremur svöl og sólarlítil, vetur tiltölulega mildir og snjóléttir - þó það sé ekki algilt. Alltént fáum við, líkt og nú stendur yfir, góðviðris kafla þar sem vetur hverfur tímabundið til þess að vetur byrji á ný - og haldi þannig áfram veturinn á enda. Og þegar koma á vor er undir hælinn lagt að það komi og ekki vetur eins og var sl. ári þegar snjóaði samfellt í 10 daga eftir miðjan maí ...





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir