Lokið við Brekkubæ á árinu

19.01 2012 - Fimmtudagur

Leikskólinn Brekkubær ber eiganda sínum glæst vitni um þann metnað sem fólst í viðbyggingu leikskólans, sem ákveðin var árið 2006, á fundi hreppsnefndar 23. febrúar það ár er bókað:

5. mál. Leikskóli, skipun bygginganefndar. Oddviti gerði grein fyrir hugmyndum að viðbyggingu við leikskólann. Greindi hann frá því að mikilvægt væri að koma hönnun strax af stað og í því sambandi væri nauðsynlegt að gera þarfagreiningu á því hvaða þætti þyrfti að hafa í huga þannig að viðbyggingin nýttist sem best starfsemi skólans til einhverrar framtíðar. Lagði hann til að skipuð yrði 3-ja manna vinnunefnd er hefði það verksvið að skilgreina þessar þarfir og vera arkitekti til fulltingis hvað þessi mál varðaði.

Gekk þetta eftir og á næstu vikum voru lagðar fram hugmyndir að stækkun Brekkubæjar en um langt árabil bjuggu starfsmenn leikskólans við afar þröngan kost þó aldrei verði því fram haldið að skólinn sem slíkur hafi búið illa að sínu fólki. Fór svo að til grundvallar lágu hugmyndir vinnunefndar, sem áttu eftir að spara sveitarfélaginu fjármuni á hönnunarferlinu en líklega eru allir sammála um að vel hafi til tekist með nýbyggingu leikskólans, sem ber jú svipmót hins upprunalega húss.

Í mikið var ráðist, grunnflötur leikskólans stækkaði um 100% með aðstöðu nýrrar deildar, starfsmannaaðstöðu og myndarlegum skála, sem er eins konar fjölnotarými. Nýframkæmdirnar kölluðu á breytingar í eldri hluta skólans, sumpart var í þær farið en miðrýmið, sem meðal annars þjónaði sem starfsmannaaðstaða áður, stóð eftir. Á fundi fulltrúa sveitarfélagsins með fulltrúum verktaka hinn 13. janúar sl. tókst samkomulag um framkvæmdir frá og með næstkomanndi mánaðarmótum sem innihalda gerð eldhúss, geymslu því tilheyrandi, vinnuherbergis og frágang á gangi, sbr. hjálagt pdf-skjal. Samþykkt var að það sem útaf stendur verði unnið í sumarfríi leikskólans í júlí.

Er ekki að efa að starfsmenn og hinir ungu nemendur leikskólans muni taka verklokum þessa áfanga fagnandi því þó sérlega vel sé að áðurnefndum búið hefur það truflað starfsemina að aðgengi að eldhúsi var eigi til staðar. Sem kunnugt er varð leikskólinn 20 ára á sl. ári og var færður Græn fáninn á því ári. Þolinmæði er dygð og umbunin þeim mun ánægjulegri þegar stund verkloka rennur upp.

Plan lekis, del - 2.pdf





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir