Á morgun, laugardaginn 21. janúar, munu Vopnfirðingar blóta þorra í Miklagarði og samkvæmt áreiðanlegum heimildum hafa selst hátt í 200 miðar á blótið. Er það nokkru minna en t. a. m. á síðasta ári en því má halda fram að Vopnfirðingar eigi við að etja það forréttinda vandamál að í frystihúsi og verksmiðju HB Granda hf. er vinnsla í góðum gangi. Þeir starfsmenn sem vilja býðst að fara á blót en margur mun eðlilega horfa til þess að tekjur er að hafa af vinnunni og þegar aldrei er vitað hversu löng vertíðin stendur yfir kann valið að vera auðvelt. Að sjálfsögðu mun hluti starfsmanna kjósa skemmtunina og njóta þess sem í boði er.
Þegar gæftir hafa verið góðar hefur veiðst. Það sem af er ári hafa alls um 2.800 tonn af loðnu verið fryst í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði. Markaður fyrir þessa afurð er í ýmsum Austur-Evrópulöndum og nú í vikunni var skipað út alls um 1.800 tonnum af frystri loðnu um borð í erlent flutningaskip. Í tengslum við umrætt blót má gera ráð fyrir að fleiri úr hópi starfsmanna hefði látið freistast hefði veður ekki leyft veiði og vinna þar af leiðandi minni verið.
Loðnuafli skipa HB Granda frá áramótum nemur alls um 13.800 tonnum en fyrsti loðnuaflinn barst til Vopnafjarðar 05. janúar sl. Þrjú skip hafa stundað veiðarnar fram að þessu en nú hefur verið ákveðið að senda hið sögufræga skip, Víking AK, einnig til veiða. Von var á Víkingi til Vopnafjarðar í gær þar sem nót verður tekin um borð áður en haldið verður á miðin. Ingunn AK, Faxi RE og Lundey NS eru öll í landi og bíða veðurs. Vonskuveður gerði á miðunum í gærmorgun en búist er við því að veðrið gangi niður í nótt og að hægt verði að stunda veiðar í dag.
En sum sé, óháð veðri, vindum og loðnuveiði munu Vopnfirðingar og gestir koma saman í félagsheimilinu Miklagarði annað kvöld og halda sitt árlega þorrablót. Að vanda er eftirvænting nokkur, mikil í tilfellum, og má telja víst að reynt verður á hláturtaugarnar ekki síður en magamál gesta – þó ber að taka til matar síns með nokkurri hægð því meiningin er að stíga dans fram á nóttina. Svo er um að gera að renna yfir það sem mögulega verður á matseðlinum … - og verði okkur öllum að góðu:
Blóðmör – bringukollar – flatkaka – hangikjöt – harðfiskur – lundabaggar - kæstur hákarl – laufabrauð – lifrarpylsa – magáll – pottbrauð – rengi – rófustappa – rúgbrauð – uppstú – selshreifar - súr sundmagi – kartöflustappa - súrsaðir hrútspungar – sviðakjammar – sviðalappir – sviðasulta – svínasulta … var það eitthvað fleira sem má bjóða má gestum Miklagarðs?