Bóndadagur = þorramatur í Ollasjoppu

20.01 2012 - Föstudagur

Á síðastliðnu ári leit heimildarmaður við í Ollasjoppu til þess að mynda matargesti söluskálans og gerði það aftur nú. Tilefnið var að sjálfsögðu sú staðreynd að í dag er bóndadagur og þá er fyrsti í þorra. Hvern föstudag, árið um kring, býður Ollasjoppa uppá gómsæta súpu í hádegi - þangað leita fastakúnnar samviskusamlega. Í dag er sem fyrr greinir fyrsti dagur í þorra og hvað er meira viðeigandi en að hafa á boðstólnum þorramat að hætti hússins? Foskot tóku á sæluna, þ. e. þorrablótið stóra í Miklagarði, tóku fastakúnnar Ollasjoppu og glaðir sátu menn og nutu þorraréttanna.

 

Heimildarmaður hafði fregnað að Ollasjoppa hygðist bjóða viðskiptavinum sínum til þorraveislu, e. k. upphitun fyrir stóra blótið á morgun – líkt og á sl. ári. Þeir tryggustu voru mættir að veisluborði um kl. 12, nutu matarins í hvívetna um leið og menn nutu samvista hvers annars. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af vettvangi, þorrinn var hafinn og fyrir þetta góða fólk hófst hann með viðeigandi hætti og verði þeim að góðu.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir