Heilbrigð sál í hraustum líkama er göfugt markmið og skv. grunnskólalögum frá 1995 segir m. a.: Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins. Svo greindi heimildarmaður frá á sl. ári og þykir sjálfsagt að endurtaka nú því í morgun var blásið til íþróttadags í grunnskólanum og var líf og fjör í íþróttahúsinu er heimildarmann bar að garði um kl. 09:15. Að venju var myndavélin með í för og er hluta þeirra mynda sem teknar voru að finna meðfylgjandi fréttinni, með misathyglisverðum athugasemdum ljósmyndarans.
Er fátt ánægjulegra en að vera innan um tápmikil börn og ungmenni. Auðvitað er það ætíð svo að áhuginn ræðst nokkuð af aldri krakkanna, því yngri því áhugasamari á degi sem þessum. Engu að síður voru allir að leggja sig fram og höfðu ánægju af - þó ekki væri nema fyrir þá staðreynd að fást við eitthvað annað en skræðurnar. Eftir að heimildarmaður yfirgaf íþróttahúsið fóru nemendur í gegnum þrautabrautina, fyrst þau yngstu og síðan þau eldri. Nokkur reyndu sig áður en að keppni kom og lentu á mynd.
Tilbreytingin er öllum nauðsynleg en aftur að markmiðum skólans skv. grunnskólalögum, í ljósi hins jákvæða framtaks grunnskólans okkar í dag. Þar stendur m.a.:

Í starfi skólans skal leggja áherslu á:
- að efla sjálfsvitund og félagsvitund nemenda
- að stuðla að líkamlegri og andlegri velferð, heilbrigðum lífsháttum og ábyrgri umgengni við líf og umhverfi
Markmið skólaíþrótta:
- að orka á heilbrigði nemenda, temja þeim hollar venjur og heilsuvernd daglegs lífs
- að vekja hug nemenda og skilning á iðkun íþrótta, svo og að þeir iðki íþróttir í tómstundum sínum og haldi áfram íþróttaiðkunum að skóla loknum.
Þetta er prýðisgott innlegg í fréttina en annars tala fjölmargar myndirnar sínu máli þar sem ofvirknin gerði vart við sig og heimildarmaður handlék myndavélartakkann sem í akkorði væri. Nú mega Skotarnir koma!