SSA mótmælir hugmyndum um færslu Reykjavíkurflugvallar

26.01 2012 - Fimmtudagur

Um árabil hefur umræðan um Reykjavíkurflugvöll verið íbúum dreifbýlisins, þ. e. þeirra er búa utan þéttbýlisradíuss borgarinnar, hugleikin og hefur þeim löngum þótt bera á skilningsskorti; að Reykjavíkurflugvöllur er fyrst og fremst landsbyggðarflugvöllur. Keflavíkurflugvöllur er jú millilandaflugvöllur eyþjóðarinnar. Þeir borgarfulltrúar, þingmenn borgarinnar og pennaglaðir íbúar í andstöðu við núverandi staðsetningu vallarins líta málið yfirleitt allt öðrum augum en við hin en í þessu sambandi er ágætt að rifja upp orð oddvita sveitarfélagsins, sem birtist m. a. á þessum vettvangi - gefum Þórunni orðið:

„Nú get ég farið að heiman á Egilsstaði að morgni, tekið flugið suður og farið til baka og alla leið heim um kvöldið ef ég þarf á fund eða sinna öðrum erindum í Reykjavík eins og títt er um þá sem eru í forystu í sveitarstjórnarmálum eða atvinnulífi á landsbyggðinni“. Þetta er mergur málsins og þarf engar frekari skýringar - hefði maður haldið.

Heimildarmaður er í hópi þeirra sem þykir á stundum að ekki sé nóg að gert til að koma þeim boðum á framfæri að Reykjavíkurflugvöllur er að þjóna landsbyggðarfólki umfram allt annað og að Reykjavík er borgin okkar ekki síður en þeirra sem byggja hana. Nú hefur Samband sveitarfélaga á Austurlandi, SSA, skrifað forsætisráðherra bréf þar sem öllum hugmyndum um færslu flugvallarins frá Reykjavík er harðlega mótmælt. Í frétt hér að lútandi segir:

SSA segir í bréfi til forsætisráðherra ljóst að Reykjavíkurborg muni afsala sér hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna, verði af áformum borgarstjórnar að leggja af Reykjavíkurflugvöll og nauðsynlegt sé að hefjast þegar handa um breytingar á opinberri stjórnsýslu. Austfirðingar hafa jafnframt sent borgarstjóranum í Reykjavík afrit af erindinu sem og fleiri ráðherrum og þingmönnum Norðausturkjördæmis.

Tilefnið er fréttir af áformum Reykjavíkurborgar að loka norður-suður braut Reykjavíkurflugvallar árið 2016 eða eftir fjögur ár. Samband sveitarfélaga á Austurlandi vill að stjórnvöld bregðist nú þegar við til að mæta þessum áformum enda verði flugvöllurinn óstarfhæfur með aðeins einni flugbraut og eina raunhæfa lausnin, að Reykjavíkurflugvelli frátöldum, sé Keflavíkurflugvöllur.

Verði miðstöð innanlandsflugsins flutt til Keflavíkur muni ferðatími verða svo langur og ferðakostnaður það mikill að óásættanlegt verði að sækja opinbera þjónustu með sama hætti og nú sé gert til Reykjavíkur. Því sé óhjákvæmilegt að opinber þjónusta og stjórnsýsla utan höfuðborgarsvæðisins verði efld og í sumum tilfellum byggð upp frá grunni á landsbyggðinni. Fer stjórn SSA fram á í bréfinu að stjórnvöld hefjist nú þegar handa við undirbúning þeirra breytinga á stjórnsýslu og opinberri þjónustu sem lokun flugvallarins krefjist.

Er óhætt að taka undir öll þau rök sem sett eru fram í bréfi SSA og fagna þeirri samstöðu sem í bréfinu kristallast.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir