Hafrannsóknarstofnun leggur til að leyfilegur hámarksafli á loðnuvertíðinni 2011/2012 verði 765 þúsund tonn. Þetta er gert í ljósi nýrra mælinga auk gildandi aflareglu um að skilja 400 þúsund tonn eftir til hrygningar. Ekki þarf að hafa yfir það mörg orð hver ávinningur samfélagsins er með auknum kvóta, Íslands í heild og útgerðarstaðar eins og Vopnafjörð, þar sem allt snýst um gjafmildi hafsins.
Rannsóknarskipið Árni Friðriksson var við rannsóknir og mælingar á stærð loðnustofnsins frá sunnanverðum Austfjörðum, norður um og allt að Norðvesturmiðum dagana 03. - 25. janúar sl. Útbreiðsla loðnunnar hefur verið könnuð og stærð stofnsins á því svæði verið mæld tvívegis. Útreikningar á stærð veiðistofnsins sem byggja á þessum mælingum sýna að alls mældust 1065 þúsund tonn af kynþroska loðnu í fyrri mælingunni, en 1020 þúsund tonn í þeirri síðari. Að viðbættum afla ársins fram að mælingum er áætlað að stærð veiðistofnsins þann 01. janúar hafi verið um 1070 þúsund tonn.
Áður en mælingar hófust í byrjun janúar var búið að veiða um 95 þúsund tonn á vertíðinni 2011/2012 og áður en síðari mælingin hófst var aflinn rúm 125 þúsund tonn, þar af var afli erlendra skipa 71 þúsund tonn.
Í ljósi gildandi aflareglu um að skilja 400 þúsund tonn eftir til hrygningar og á grundvelli ofangreindra mælinga í janúar 2012, hefur Hafrannsóknastofnunin nú lagt til að leyfilegur hámarksafli á vertíðinni 2011/2012 verði ákveðinn 765 þúsund tonn, að meðtöldum þeim afla sem búið var að veiða þegar mælingar fóru fram, svo sem áður segir.
Í ljósi ofangreindra jákvæðu fregna er ánægjulegt að geta þess að vel gengur í fiskimjölsverksmiðju HB Granda hf. á Vopnafirði en á heimasíðu félagsins, www.hbgrandi.is, er m. a. rætt við Sveinbjörn Sigmundsson verksmiðjustjóra þann 25. janúar sl. Í fréttinni segir.
Það, sem af er ári, hafa alls tæplega 11.000 tonn af loðnu farið til bræðslu hjá fiskmjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði. 1.200 tonnum af loðnumjöli var skipað út frá Vopnafirði nú í byrjun vikunnar og var það fyrsta útskipun ársins á mjöli en áður hafði frystri loðnu verið skipað út frá Vopnafirði.
Að sögn Sveinsbjörns Sigmundssonar, verksmiðjustjóra HB Granda á Vopnafirði, hefur vinnslan gengið mjög vel á árinu. Öll loðna, sem landað er á Vopnafirði, fer í gegnum flokkarakerfi fyrirtækisins og sú loðna sem ekki hentar til frystingar skilst frá og fer til bræðslu.
Er rætt var við Sveinbjörn var Lundey NS í höfn á Vopnafirði en hin skipin þrjú, Ingunn AK, Faxi RE og Víkingur AK voru þá öll á miðunum austur af landinu eða á leiðinni þangað. Lundey fer út síðar í dag en næsta skip, sem von er á til hafnar, er Ingunn AK sem nú er að veiðum.