Markaðsstofan fundar og Ásta kvödd

31.01 2012 - Þriðjudagur

Eins og greint hefur verið frá – og verður nánar vikið að síðar á þessum vettvangi – standa fyrir dyrum breytingar á stoðstofnanakerfi Austurlands, sem m. a. þýðir að núverandi stjórn Markaðsstofu Austurlands mun brátt heyra sögunni til. Um leið og stjórnin kveður hættir framkvæmdastjóri MA sl. 3ja ára, Ásta Þorleifsdóttir, og var kvödd með viðeigandi hætti að fundi stjórnar loknum í gær, mánudaginn 30. janúar. Heimildarmaður, sem einn stjórnarmanna, sat fundinn og hófið og tók þannig virkan þátt í kveðjustundinni á Hótel Héraði.

Að þessu tilefni, þ. e. a.  Ásta hverfur úr sæti framkvæmdastjóra Markaðsstofu Austurlands, flutti Skúli Björn formaður stjórnar tölu og færði Ástu gjöf starfsmanna og stjórnar. Var Ástu þökkuð framúrskarandi störf. Auk Skúla mælti Katla Steinsson, fyrrum framkvæmdastjóri MA, nokkur orð til kollega síns og færði henni gjöf, og Magnús Már sömuleiðis, en sem fulltrúi sveitarfélaganna kom hann á framfæri þökkum fyrir hönd umbjóðenda sinna og ekki síður frá eigin brjósti en allt frá öndverðu hefur Magnús borið lof á störf Ástu. Með krafti, dugnaði og víðsýni hefur Ásta unnið mikið og gott starf fyrir Austurland - hefur verið til þess tekið í öðrum landshlutum - og verður skarð hennar vandfyllt.

 

Tók heimildarmaður nokkrar myndir sem hér birtast, af fundi sem og kveðjuhófi.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir