Aflahlutur HB Granda gæti orðið 100 þúsund tonn

01.02 2012 - Miðvikudagur

Líkt og frá var greint síðastliðinn föstudag hefur Hafrannsóknastofnun lagt til að heildarafli á loðnu á yfirstandandi vertíð verði 760 þúsund tonn og byggir á niðurstöður mælinga á stærð loðnustofnsins í janúar. Fari ráðherra að tillögu stofnunarinnar, sem gera má ráð fyrir, er ljóst að heildarloðnukvóti íslenskra skipa á vertíðinni verður um 590 þúsund tonn og áætlað aflaverðmæti gæti orðið allt að 30 milljarðar króna. Hinn hluti kvótans fellur í hlut Norðmanna.

 

Hlutur HB Granda í heildaraflamarki Íslendinga er 18.6% og því er ávinningur félagsins mikill en í víðara samhengi koma fréttir sem þessar þjóðarbúinu vel og ekki þarf að fjölyrða um hver hagur Vopnafjarðar er. Í viðtali á heimasíðu félagsins, www.hbgrandi.is, segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs m. a.:

 

„Þetta eru góðar fréttir. Hlutdeild HB Granda í heildaraflamarki Íslendinga á loðnu nemur 18,6% og verði farið eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar þá mun loðnukvóti skipa félagsins losa 100 þúsund tonn á yfirstandandi vertíð“. Að sögn Vilhjálms hafa miklar sveiflur verið í loðnuveiðunum undanfarin ár. Þegar gengið var frá samruna Granda hf., HB hf., og Tanga hf. undir merkjum HB Granda, var loðnukvóti hins sameinaða félags veturinn á eftir, þ. e. 2004/05, um 140 þúsund tonn og aflinn um 121 þúsund tonn. Fjórum árum síðar var loðnukvótinn kominn niður í rúm 3.000 tonn, veturinn 2008/09, en síðan hefur leiðin legið upp á við að nýju.

 

Fáar starfsstéttir eiga í jafn nánum samskiptum við veðuröflin og sjómenn en þrátt fyrir stórbættar aðstæður allar verður ekki við öllu séð, öðru nær. Að þessu víkur Gunnlaugur skipstjóri á Ingunni AK í viðtali á heimasíðu félagsins í gær og segir:

 

„Það eina, sem við biðjum um núna, er gott veður. Það veltur allt á veðráttunni. Ef hún verður góð þá náum við loðnukvótanum en það er alveg ljóst að ef veðráttan verður eins og á vertíðinni í fyrra þá er ekki fræðilegur möguleiki að kvótinn náist. Og það gæti vantað mikið upp á það,“ en hann, skip hans og áhöfn er nú að veiðum í leiðinda brælu um 70 sjómílur austur af Norðfirði. Segir Gunnlaugur loðnuna fremur dreifða en hins vegar á sinni venjulegu gönguleið suður með kantinum úti af Austfjörðum og ef að líkum lætur mun hún skila sér af krafti upp á grunni fyrir sunnan okkur áður en langt um líður.

 

Loðnuafli skipa HB Granda frá áramótum nemur nú rúmlega 22.000 tonnum en afli þeirra fyrir áramót var 4.200 tonn. Það er því ljóst að ærið verkefni er framundan hjá skipum félagsins, fari svo að ráðherra ákveði að fara að tillögum fiskifræðinga.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir