Fjölskyldumessa í Hofskirkju, rútuferð og kjötsúpa

03.02 2012 - Föstudagur

Sunnudaginn 5. febrúar, kl. 11:00 verður fjölskyldumessa fyrir alla í Hofskirkju. Eftir guðsþjónustuna býður Kvenfélagið Lindin kirkjugestum upp á kjötsúpu í Staðarholti. Rútuferð verður frá Vopnafjarðarkirkju.

Fermingarbörn verða með bænir, 10-12 ára börn sýna helgileik og lesa ritningarlestur, kirkjukórinn syngur o. fl.

Rútuferð verður frá Vopnafjarðarkirkju kl. 10:40 og til baka frá Staðarholti um kl. 12:40.

Eru íbúar hvattir til koma til kirkju og eiga gæðastund í kirkjunni okkar með börnunum.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir