Vopnfirðingurinn, Guðríður - Guja – Ármannsdóttir, útskrifaðist sem doktor í markaðsfræðum frá Hull háskóla 25. janúar sl. Er Guju hér með færðar heillaóskir með áfangann en ung hélt hún út í heim og hefur sl. ár bæði kennt og numið í Englandi. Eru fréttir af Íslendingum sem láta að sér kveða á erlendri grund ávallt einkar ánægjulegar og þegar hlutaðeigandi er Vopnfirðingur að auki er það skylda að greina frá hlutaðeigandi á þessum vettvangi.
Á heimasíðu Hull háskóla er að sjálfsögðu frá útskrift Guju greint auk þess sem í stuttu máli er hægt að nálgast nánari upplýsingar um verkefnið. Í lauslegri þýðingu heimildarmanns varðar málið þetta:
Marketing communications practices in SMEs through a cultural lens: a one nation perspective : Iceland. Markaðsmál lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi og hvaða áhrif fyrirtækjamenning hefur á markaðsmál þeirra.
Markaðssetning hefur orðið að aðlaga sig að gjörbreyttu umhverfi á undanförnum tveimur áratugum. Netið, veraldarvefurinn, hefur gefið fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum tækifæri til að koma sér á framfæri og kynna vörur sínar og framleiðslu með áður óþekktum hætti. Samtímis þurfa fjölmiðlar að takast á við hið breytta umhverfi þar sem aðgengi upplýsinga stendur öllum til boða á netinu.
Þessari rannsókn er ætlað að rannsaka mikilvægi og notagildi samþættrar markaðssetningar / Integrated Communications Marketing (IMC) innan lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi og hver eru mögulega hin menningarlegu áhrif á starfsemi þeirra.
Guja kaus að velja Ísland þar eð stór hluti fyrirtækja telst til lítilla og meðalstórra (SME), og eiga sinn stóra þátt í efnahagslegum vexti þjóðarinnar. Aðferðarfræðin var blönduð, annars vegar ræddi rannsakandi við æðstu stjórnendur hinna litlu og meðalstóru fyrirtækja í fyrsta áfanga og lagði fram spurningalista í öðrum áfanga. Niðurstöður sýna að stjórnendur kusu eftir sem áður hefðbundnar auglýsingaaðferðir en rannsóknin sýnir einnig að áhrifa gætir frá staðbundinni fyrirtækjamenningu.
Þar eð efnið er flóknara en svo að heimildarmaður treysti sér til fara dýpra í það er vísað á heimasíðu Hull háskóla, www2.hull.ac.uk, og slá upp heiti ritgerðar Guju, sbr. ofan: Marketing communications practices in SMEs through a cultural lens: a one nation perspective : Iceland.
Að lokum eru heillaóskir ítrekaðar og megi Guju Ármannsdóttur vegna vel um ókomin ár.
Myndirnar sýna Guju á útskriftardaginn, Drottningargarðinn í Hull og að lokum viðskiptaháskólann við Hull University.