Lífshlaupið – virk þátttaka Vopnafjarðarskóla

04.02 2012 - Laugardagur

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta-og Ólympíusambands Íslands, var ræst í fimmta sinn miðvikudaginn 01. febrúar sl. Á síðastliðnum árum hefur átt sér stað mikil vakning meðal fólks um gildi hreyfingar en þó virðist alltaf þörf á að minna á þessa staðreynd öðru hverju – öllu heldur með jöfnu millibili. Lífshlaupið á sér sum sé nokkurra ára sögu með almennri þátttöku íbúa víðs vegar um landið, í ár er Vopnafjarðarskóli sannarlega virkur þátttakandi því 20 af 24 starfsmönnum stofnunarinnar eru meðal þátttakenda í Lífshlaupinu í ár – og fá hvatningaróskir sendar á þessum vettvangi.

 

Eins og áður greinir á Lífshlaupið sér nokkra forsögu en þáv. menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, skipaði í byrjun ársins 2005 starfshóp til þess að fara yfir íþróttamál á Íslandi með það að markmiði að móta íþróttastefnu. Formaður starfshópsins var Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi heilbrigðisráðherra. Starfshópurinn setti fram hugmyndir um mótun stefnu eða tillögu að íþróttastefnu Íslands í skýrslunni, Íþróttavæðum Ísland, aukin þátttaka, breyttur lífsstíll. Meginmarkmið skýrslunnar var að finna leiðir fyrir alla hópa þjóðfélagsins, óháð aldri, búsetu, fjárhag eða öðrum þáttum að stunda íþróttir og hreyfingu með einum eða öðrum hætti sér til heilsubótar.

 

Hvað er Lífshluapið þá? Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ. e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Lýðheilsustöð, nú embætti landlæknis, gaf út í fyrsta skipti árið 2008 ítarlegar ráðleggingar um hreyfingu. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag

 

Inn á vef Lífshlaupsins er hægt að velja um þrjár leiðir.

Ef þú ert 15 ára og yngri getur þú tekið þátt í hvatningarverkefni fyrir grunnskóla.

Ef þú ert 16 ára og eldri getur þú tekið þátt í vinnustaðakeppni.

Allir geta tekið þátt í einstaklingskeppni þar sem þátttakendur geta skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.

 

Sem fyrr greinir er Vopnafjarðarskóli beinn þátttakandi í þessu skemmtilega og um leið mikilvæga verkefni ÍSÍ og vonandi að aðrir líti til þeirrar fyrirmyndar sem framtakið skapar. Öll keppni er af hinu góða og innan skólans er háð hörð keppni 2ja 10 manna liða en samviskusamlega skráir fólk hreyfingu sína, sem er hvers og eins að ákvarða. Nokkur hópur hefur verið að mæta í líkamsræktina og aldrei að vita nema átakið verði til þess að hvetja fleiri en sveitarstjórn hefur samþykkt að veita 50% afslátt á mánaðarkortum í líkamsræktina dagana 06.-17. febrúar n. k. og á sama tíma verða krot þeirra sem þegar hafa keypt sér kort fryst vilji þeir hinir sömu nýta sér afsláttarkjörin.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir