Í dag, mánudaginn 06. febrúar, er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. 06 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Ávallt er eitt og annað gert í tilfeni dagsins í leikskólum víðs vegar um land, leikskólinn Brekkubær er þar engin undantekning. Á sl. ári voru t. a. m. hengdar upp myndir af börnunum og listaverk eftir þau komið fyrir í Landsbankanum, Sundabúð og Kauptúni. Rölt var um bæinn og komið við á völdum fyrirtækjum þar sem sungið var fyrir hlutaðeigandi starfsmenn – og dagurinn kláraður með pítsuveislu á Hótel Tanga. Má gera ráð fyrir að unghjörtun rölti um bæinn í fylgd kennara sinna í dag og gleðji fólk með söng sínum og nærveru.
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Dagur leikskólans er nú haldinn í fimmta sinn. Í tilefni dagsins hefur m. a. verið auglýst eftir gullkornum frá leikskólum landsins. Þau þurftu að vera lýsandi fyrir það nám sem leikskólabörn stunda og óskað var eftir mynd með. „Bestu“ gullkornin hafa verið valin á veggspjald og verður þeim dreift til leikskóla og sveitafélaga. Auk þess var óskað eftir myndböndum með stuttum viðtölum við leikskólabörn um leikskólalífið. Dæmi um spurningar sem þau svöruðu: Hvað lærir þú í leikskólanum? Hvað gera leikskólakennarar og hvernig eiga góðir leikskólakennarar að vera? Myndböndin verða notuð við ýmis tækifæri og reynt að koma efni þeirra á framfæri í fjölmiðlum.
Fá starfsmenn og nemendur Brekkubæjar sendar hinar bestu kveðjur á degi leikskólans.