Rétt eins og greint var frá í gær héldu leikskólar landsins upp á dag leikskólans. Ungir nemendur Brekkubæjar röltu um bæinn ásamt starfsmönnum og komu víða við, m. a. á hreppsskrifstofunni þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Afhentu unghjörtun sveitarfélaginu veggspjald með völdum gullkornum leikskólabarna víðs vegar á landinu auk þess sem kyrjaðir voru nokkrir söngvar.
Á veggspjaldinu má m. a. lesa:
Barn að borða grænmetisbuff í matinn og segir: „Ég elska svona grænmetiskjöt“.
Barn heyrði orðið frumskógur og segir: „Ég á ekki frumskóg, ég á bara kuldaskó“.
Barn segir við kennarann: „Ég er að syngja ósýnilegt lag“.
Mörg önnur gullkorn er að finna á veggspjaldinu er prýðir nú einn vegg skrifstofu sveitarfélagsins.