Úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs

07.02 2012 - Þriðjudagur

Í gær, mánudaginn 06. febrúar, bauð stjórn Menningarráðs Austurlands til viðhafnar á Skriðuklaustri hvar menningarstyrkir voru afhentir 63 verkefnum á Austurlandi, að upphæð samtals 26 milljónir króna. Þáttur Vopnafjarðar er stór að þessu sinni því verkefnið Rímur og rokk fékk 800 þúsund króna styrk, menningarmálanefnd 650 þús. og Bustarfell 200 þús. Auk Menningarráðs koma að úthlutuninni mennta- og menningarráðuneytið og ráðuneyti iðnaðar, samkvæmt samningi aðila í millum en í 3. grein hans segir m. a.:

 

 

Framlag til samningsins er áætlað 44,5 m.kr. á ári og skiptist þannig:

 

Mennta- og menningarmálaráðuneyti leggur til 26,1 m.kr.

Iðnaðarráðuneyti leggur til 5,7 m.kr.

 

Sveitarfélögin á Austurlandi leggja sameiginlega til að lágmarki sem næst 40% af framlögum ráðuneyta eða sem nemur 12,7 m.kr.

 

Eins og ávallt er má um það deila hvað er há upphæð og hvað ekki en víst er að mörg verkefnanna eru afar athyglisverð og í þann hóp má staðsetja verkefnið Vopnafirska, Rímur og rokk, einn hæsta styrkhafann. Að því verkefni hafa Hrund Snorradóttir og Sigríður Dóra Sverrisdóttir unnið sl. mánuði og verður sérstaklega kynnt á þessum vettvangi á morgun.

 

Eins og áður greinir fékk menningarmálanefnd úthlutað samtals 650 þúsund til 3ja verkefna: Vopnaskak, listasmiðjur í tengslum við Einu sinni á ágústkvöldi og sagna- og skáldakvöld að sumarlagi. Bustarfell fékk ennfremur styrk til að vinna að frekari uppbyggingu menningar í tengslum við safnið

 

Meðfylgjandi eru myndir heimildarmanns af viðhöfninni, sem fram fór í Snæfellsskála Vatnajökulsþjóðgarðar en kaffiveitingar eftir á í Skriðuklaustri og þar er ekki í kot vísað þegar kemur að Elísabetu Þorsteinsdóttur í Klausturkaffi.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir