Rímur og rokk – Vopnfirskt menningarverkefni

08.02 2012 - Miðvikudagur

Kaupvangur, menningar- og fræðasetur Vopnfirðinga og Sigríður Dóra Sverrisdóttir hlutu 800 þúsund króna styrk frá Menningarráði Austurlands fyrir verkefnið Rímur og rokk. Móttók Sigríður, f. h. aðstandenda, styrkinn við athöfnina á Skriðuklaustri/Snæfellsstofu sl. mánudag.

 

 

Rímur og rokk er samstarfsverkefni milli Kaupvangs á Vopnafirði og Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. Markmiðið er að viðhalda þeirri menningararfleifð sem ferskeytlur, limrur og þulur eru. Rímur og þjóðlög eru með elstu kveðskaparaðferðum Íslendinga og síðan limrur, ferskeytlur og annar kveðskapur. Í gegnum nefnt samstarf hlýtur verkefnið ennfremur 600 þúsund króna styrk frá Eyþingi, ígildi Menningarráðs á Norðurlandi eystra.

 

Kveðskapur á sér sterkar rætur á Vopnafirði en eins og kunnugt er samdi og safnaði Erla skáldkona (Guðfinna Þorsteinsdóttir frá Teigi) þulum. Sonur hennar, Þorsteinn Valdimarsson, skáld, átti ríkan þátt í því að koma limrum til Íslands og Jónas Árnason samdi einnig limrur. Helgi Kristjánsson frá Leirhöfn á Melrakkasléttu safnaði rímum sem nú eru varðveittar á Byggðasafni N.-Þingeyinga á Snartarstöðum við Kópasker.

 

Verkefnið Rímur og rokk snýr að því að fá þekkta listamenn til að koma til Vopnafjarðar og halda 5 daga námskeið í júní 2012 fyrir ungmenni frá Vopnafirði, Bakkafirði, Kópaskeri og Raufarhöfn, kenna þeim bragfræði og búa til rímur. Afrakstur námskeiðsins verður svo fluttur víða á Norðausturlandi, á vinnustöðum og í félagsheimilunum á Raufarhöfn, Kópaskeri og Vopnafirði. Þátttakendur koma til með að læra að kveða rímur og flytja þær við undirleik, svipað því sem hljómsveitin Skálmöld hefur verið að gera þar sem hún hefur fært fornan rímnakveðskap yfir í þungarokk.

 

Listamennirnir sem munu vinna við verkefnið Rímur og rokk eru Steindór Andersen kvæðamaður, Baldvin Eyjólfsson tónlistarmaður frá Vopnafirði, Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld og Gunnar Ben, kórstjóri og meðlimur í hljómsveitinni Skálmöld.

 

Rímur og rokk er hugsað sem undanfari stærra, fjölþjóðlegs verkefnis byggðu á sömu hugmynd þar sem samstarf verður milli listamanna á Austurlandi, í Vesterålen í Noregi og Donegal á Írlandi en nú þegar eru komin drög að því verkefni.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir