Fjölskyldumessa í Hofskirkju

09.02 2012 - Fimmtudagur

Síðastliðinn sunnudag var haldin fjölskyldumessa í Horfskirkju og alltaf stóð til að birta myndir frá athöfninni enda var heimildarmaður, sem gjarnan sækir messu, með myndavélina meðferðis og tók þar af leiðandi nokkrar myndir sem birtast hér og nú. Fjölskyldumessan stóð undir nafni, létt var yfir messugjörðinni og þátttaka ungmenna virk. Að messu lokinni var haldið yfir í Staðarholt þar sem beið kjötsúpa að hætti frú Ágústu og var gerð góð skil.

Myndirnar tala sínu máli og þær studdar smágerðum texta heimildarmanns.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir