Sunnudaginn 12. febrúar, kl. 14:00 verður samkirkjuleg helgistund í Hvítasunnukirkjunni. Helgistundin er í umsjá fólks úr Hvítasunnukirkjunni og Þjóðkirkjunni í tilefni af samkirkjulegri bænaviku. Boðið verður upp á kaffi eftir stundina. Þó minna kunni að bera á starfi Hvítasunnukirkjunni á Vopnafirði er starfi haldið úti, það sést best á heimsókn inná heimasíðu kirkjunnar, www.gospel.is og áfram á Vopnafjörð.
Þegar upplýsinga er leitað varðandi þetta ágæta framtak má lesa: Vikuna 18.-25. janúar er alþjóðleg samkirkjuleg bænavika þar sem kristnir menn koma saman um víða veröld til að biðja fyrir einingu kristinna manna. Það er samtarfsvettvangur kirknanna innan Alkirkjuráðsins og Kaþólsku kirkjunnar sem fela einhverju landi að undirbúa vikuna. Að þessu sinni eru það kirkjurnar í Póllandi sem hafa annast það.
Þessa viku sameinast s. s. kristið fólk um allan heim í bæn fyrir einingu. Þemað er "Sigur Krists umbreytir okkur!" og kemur úr I. Korintubréfi, 15:51-58 og vísar í sögu Póllands og orðræðu sigurs og ósigurs. Samkirkjuleg bænavika er kærkomin vettvangur fyrir alla þá sem stunda bænalíf og vilja kynnast bænafólki og efla samfélag og vináttu.
Allir eru velkomnir í Hvítasunnukirkjuna sunnudaginn 12. febrúar kl. 14:00.