Í gærmorgun voru skip HB Granda, auk tveggja skipa sem fengin hafa verið til að veiða af loðnukvóta félagsins, búin að veiða alls um 51.000 tonn af loðnu á vertíðinni en það samsvarar helmingi úthlutaðs kvóta upp á 102.000 tonn. Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarveiðisviðs HB Granda, segist reyndar eiga von á því að bætt verði við kvótann síðar þar sem sýnt þyki að Grænlendingar nái ekki að nýta veiðiheimildir sínar að fullu nú á vertíðinni.
Heimildarmaður leitaði upplýsinga hjá Magnúsi Þór Róbertssyni, vinnslustjóra HB Granda á Vopnafirði. Aðspurður um hvernig hefði gengið fram til þessa sagði Magnús:
„Hið eina sem hefur verið að trufla okkur er veðrið en hvasst hefur verið á miðunum samfara hlýindunum. Hins vegar hefur allt gengið að óskum, skipunum vegnað vel þegar gefið hefur til veiða og hér sem og á Akranesi gengur vinnslan vel.“ Þess má geta að HB Grandi brá á það ráð að fá tvö skip til að veiða fyrir félagið, Huginn VE, sem kom með 1.700 tonn til Akraness, og Hoffell SU, sem landaði 1.220 tonnum á Vopnafirði.
Um hlutfall aflans sem fer til frystingar og í fiskimjölsverksmiðjuna sagði Magnús:
„Við erum búin að frysta hátt í 7000 tonn hingað til en hlutfall aflans sem fer í gegnum uppsjávarfrystihúsið af hverjum afla er frá 1/3 upp í ½ en loðnan er stór og góð“. Fréttum samkvæmt eru skipin að veiða á grunnslóð og þar sem töluverð áta er í þeirri loðnu sem veiðst hefur undanfarna daga hefur hún farið í bræðslu fiskimjölsverksmiðjunnar, bæði á Vopnafirði og á Akranesi.
„Við munum halda okkar striki, við eigum mikinn kvóta og ekki veitir af að báðar vinnslustöðvar séu keyrðar á fullu. Loðnu er víða að finna, stórir flekkir allt frá Húnaflóa og suð-austur af landinu. Mér sýnist allt stefna í að ekki verði byrjað í hrognavinnslu fyrr en um næstu mánaðarmót enda mikið magn af fiski eða viku síðar en við eigum að venjast – við erum að tala um alvöru vertíð. Hið eina sem hefur verið að trufla okkur og stöðvað vinnsluna er veðrið en ég reikna með að við gætum selt meira en við náum að veiða þó við væntum þess að bætt verði við kvótann. Megnið af framleiðslu okkar fer til Austur-Evrópu, umfram allt til Rússlands, Hvíta-Rússlands og Úkraínu.“
Er það einkar gleðilegt að allt gangi að óskum hjá HB Granda, fyrir land og þjóð - og ef við horfum okkur nær, fyrir samfélagið Vopnfirska.