Hinn 01. janúar 2012 voru landsmenn alls 319.575 og hafði fjölgað um 1.123 frá sama tíma árið 2011. Þetta jafngildir fjölgun landsmanna um 0,4%. Konum fjölgaði nokkuð meira en körlum eða um 0,5% á móti 0,2%. Á síðasta ári leit út fyrir að þróunin væri að einhverju leyti að snúast við hvað Vopnafjörð varðar og virðist hún halda áfram því þó fjölgunin sé óveruleg, 2 íbúum ríkari í upphafi árs 2012 en áramótin á undan – 670 á móti 668 – fækkar ekki eins og var viðvarandi um árabil á undan.
Eins og tilkynnt var á síðasta ári birtir Hagstofan nú tölur um meðalmannfjölda ársins í stað miðársmannfjölda eins og verið hefur frá árinu 1998. Meðalmannfjöldinn er reiknaður sem einfalt meðaltal tveggja talna 1. janúar hvers árs og 1. janúar þess næsta. Með þessu móti getur hver sem er reiknað út meðalmannfjöldann eins og þarf, en Hagstofan birtir helstu skiptingar til hagræðis fyrir notendur.
Fólksfjölgun var á höfuðborgarsvæðinu, en þar voru íbúar 1.253 fleiri 1. janúar 2012 en fyrir ári. Það jafngildir 0,6% fjölgun íbúa á einu ári. Hlutfallslega varð fólksfjölgunin hins vegar mest á Suðurnesjum, þar sem fjölgaði um 0,7%, eða 154 frá síðasta ári. Fólki fjölgaði einnig á Norðurlandi eystra, um 12 einstaklinga og um 50 (0,4%) á Austurlandi. Fólksfækkun var á fjórum landsvæðum, mest á Norðurlandi vestra þar sem fækkaði um 194 manns, eða 2,6%. Umtalsverð fólksfækkun var einnig á Vestfjörðum en þar fækkaði um 82, eða 1,2%. Minni fólksfækkun var á Suðurlandi (0,2%) og Vesturlandi (0,1%).
Miðað við ofangreindar forsendur Hagstofunnar eru íbúar á Austurlandi nú 10.213 en voru á sl. ári 10.187 – með því að reikna út íbúafjölda sveitarfélaganna eins og tölurnar birtast á heimasíðu Hagstofunnar miðað við 01. janúar 2012 – eða 26 einstaklingum fleiri á milli ár. Að ofan stendur þó talan 50. Hvergi er um verulega fjölgun að ræða en af 8 sveitarfélögum fjölgar fólki í 5, hlutfallslega mest í Djúpavogshreppi, úr 447 í 461. Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð, tvö langstærstu sveitarfélögin halda sínu og liðlega það, miðað við forsendur Hagstofunnar fjölgaði um 7 á Héraði og 17 einstaklinga í Fjarðabyggð, sem nú telja 3408 og 4600 íbúa.