Fjaðrirnar = Vopnfirskar blakkonur

16.02 2012 - Fimmtudagur

Á liðnum vetri ákvað hópur Vopnfirskra kvenna að koma saman til blakæfinga í sal íþróttahússins. Allt byrjaði þetta sem léttur leikur – og er það svo sem áfram – en smám saman óx stúlkunum ásmegin og án þess að þess væri sérstaklega getið í fjölmiðlum þjóðarinnar skráðu Vopnfirsku blakdömurnar sig til keppni í einu þeirra móta sem fram fara vítt og breitt um landið að vetri. Fjaðrirnar urðu til og ekki litið um öxl eftir það og nú er vettvangurinn 3. deild Íslandsmótsins, Austurlandsriðill.

 

Málið er að á sama tíma og blakíþróttin á undir högg að sækja sem keppnisíþrótt í fremstu röð er áhugi á s. k. öldungablaki, sem er vægt til orða tekið teygjanlegt hugtak, gríðarlegur á Íslandi. Skipta þeir orðið þúsundum sem blakið stunda og má leiða að því líkum að konur standi karlmönnum þar framar hvað þátttakendafjölda áhrærir. Tilgangurinn er þó ekki sá að metast á því sviði heldur að njóta þess að taka þátt í skemmtilegri keppni hver sem andstæðingurinn kann að vera. Almennt ríkir samstaða og gleði á mótunum þar sem gamli ungmennafélagsandinn er aldrei langt undan.

 

Heimildarmaður mætti á æfingu Fjaðranna í gærkvöldi, sem með dyggri aðstoð Kauptúns, hafa komið sér upp keppnisbúningi, merktur í bak og fyrir eins og myndirnar bera með sér. Á sunnudag n. k. verður haldið á Reyðarfjörð þar sem næsta mót, „túrnering“, fer fram en sem dæmi voru okkar stúlkur í 6. sæti á þar síðasta móti en í 3ja á því síðasta. Er ljóst að framfarir eru stórstígar og áhuginn mikill – hver veit nema þær geti boðið einhverjum andstæðingnum að koma og keppa í litla íþróttahúsinu okkar en eins stór og þessi mót eru verður ekki keppt hér því nýta þarf a. m. k. tvo velli hverju sinni til að keyra mótin áfram.

 

Fá Fjaðrirnar baráttukveðjur sendar á þessum vettvangi – og koma svo stelpur, klasssssi!





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir