Föstudaginn 17. febrúar sl. komu nemendur grunnskólans saman í íþróttahúsinu til þess að sýna okkur hinum hvað þau lærðu í fótamennt í vikunni hjá Hinrik danskennara. Og víst höfðu nemendur ýmislegt numið af meistaranum og var að venju ánægjulegt að sjá til þeirra. Verður ekki hjá því komist að hugsa til þess hvers krakkarnir okkar fara á mis við að hafa öllu jafna ekki aðgengi að danskennslu en ef vel ætti að vera skyldi danskennsla vera í boði innan skólans allan veturinn, rétt eins og íþróttir aðrar.
Heimildarmaður staðsetti sig á gólfi íþróttahússins að þessu sinni og náði að taka nokkrar myndir og lætur þær fylgja með eins misjafnar og þær er að gæðum! Sem fyrr greinir var, líkt og ávallt er, sérlega ánægjulegt að horfa á krakkana dansa enda löngu vitað að vart er til nokkuð skemmtilegra en einmitt að hreyfa sig við taktfasta tónlist. Svo er hreyfingin líka svo holl. Meira af dansi fyrir alla.