Ammoníaksleki í fiskiðjuveri HB Granda

21.02 2012 - Þriðjudagur

Greint var frá því í fréttum í morgun að tveir starfsmenn HB Granda á Vopnafirði hafi verið fluttir til Akureyrar þar eð ammoníaksleka varð vart í fiskiðjuveri félagsins í gærkvöldi. Heimildarmaður setti sig í samband við Magnús Þór Róbertsson, vinnslustjóra, hér að lútandi, er staðfesti að leki hafi verið í slöngu í einum frysti uppsjávarfrystihússins en allt fór þó vel og það skiptir jú öllu máli.

 

Við atvik sem þetta er engin áhætta tekin, því voru starfsmennirnir tveir fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri í gærkvöldi til rannsóknar og aðhlynningar enda önduðu þeir að sér ammoníaki, sem út í andrúmsloftið lak. Sem betur fer mun þeim ekki hafa orðið alvarlega meint af, samkvæmt Magnúsi Þór. Slökkvilið staðarins var kallað á vettvang til að loftræsta húsið þegar búið var að stöðva lekann.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir