Dagurinn í dag er dagur allra barna á öllum aldri, öskudagurinn, og er óskandi að öll börn njóti hans til fullnustu. Sá sem þetta ritar á dásemdar minningar frá æskuárunum á Akureyri en bærinn sá hefur löngum verið höfuðvígi öskudagshátíðarhalda - og er svo enn. Önnur bæjarfélög hafa tekið upp háttu norðanmanna að einhverju leyti en ekki kom til greina að skóli væri starfræktur þennan dag heldur var mætt í bítið til þess að gera sig kláran fyrir daginn - og snemma var rölt af stað en ólíkt núinu voru engir foreldrar til þess að aka með börnin á milli staða á þeim árum!
Skólinn er að sjálfsögðu þungamiðja viðburða dagsins en skólastjórnendur tóku þá skynsömu ákvörðun að hefja daginn í íþróttahúsinu í stað þess að enda daginn þar því þá fengu krakkarnir tækifæri á að láta fallega öskudagsbúningana að njóta sín. Að sjálfsögðu var heimildarmaður mættur tímalega í íþróttahúsið til að mynda herlegheitin og fylgja frétt dagsins eigi færri en 67 ljósmyndir, sem gefa nokkuð glögga mynd af deginum á Vopnafirði. Að sönnu var börnunum ekki fylgt eftir á milli fyrirtækja en komin á hreppsskrifstofuna voru þau mynduð, hver einasti hópur líkt og ávallt er gert. Á leikskólanum er ávallt mikið um að vera og fá litlu hnoðrarnir sinn sælgætispoka frá hreppnum og mega svo sannarlega njóta þess þennan eina dag ársins.